Heilbrigðisgagnafræðingur óskast í sumarafleysingu á HSU Selfossi
Heilbrigðisgagnafræðingur óskast í sumarafleysingu á HSU Selfossi
- Laust er til umsóknar 100% sumarstarf heilbrigðisgagnafræðings við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi
- Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf eigi síðar en 13. júní 2022
Helstu verkefni og ábyrgð
- Meðhöndlun, skráning, úrvinnsla og vistun heilbrigðisgagna í rafræna sjúkraskrá
- Stoðþjónusta við stjórnendur ásamt þverfaglegri teymisvinnu
Hæfniskröfur
- Starfsleyfi Landlæknis
- Góð tölvukunnátta er skilyrði
- Þekking á Sögukerfinu er æskileg
- Gott vald á íslensku, góð enskukunnátta kostur
- Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Til greina kemur að ráða nema í heilbrigðisgagnafræði eða nemanda í öðru námi í heilbrigðisfræðum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi hafa gert.
- Um er að ræða dagvinnu alla virka daga
- Starfið veitist frá 1. júní 2022 eða samkvæmt nánara samkomulagi
- Umsókn þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi, fyrri störf
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.05.2022
Nánari upplýsingar veitir
Aðalheiður Ásgeirsdóttir - [email protected] - 4322000