Sérfræðingar í heimilislækningum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Sérfræðingar í heimilislækningum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Viltu slást í hópinn og taka þátt í spennandi uppbyggingu?
Fram undan er mikil uppbygging á HSS og leitum við að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum til að slást í okkar frábæra hóp.
Laus er til umsóknar starf sérfræðings í heimilislækningum á heilsugæslusviði. Um er að ræða 2 ótímabundnar stöður og er starfshlutfallið 100% eða eftir samkomulagi . Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánari samkomulagi.
Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Móttaka og meðferð sjúklinga. Þátttaka í umbótaverkefnum, teymisvinnu og þróun í samvinnu við yfirlækni. Læknar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum lækna og deildarinnar.
Hæfniskröfur
- Íslenskt lækningaleyfi
- Sérfræðileyfi í heimilislækningum
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Brennandi áhugi á þróun þjónustunnar
- Jákvætt viðmót, hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að starfa í teymi
- Áreiðanleiki, drifkraftur, þrautseigja og árangursmiðað viðhorf
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrasvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Íbúafjöldi upptökusvæðisins, sem er Reykjanesið, er um 28.000 íbúar auk alþjóðaflugvallar.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.07.2022
Nánari upplýsingar veitir
Snorri Björnsson - [email protected]