Sjúkraliði á lyflækningadeild Fossvogi
Sjúkraliði á lyflækningadeild Fossvogi
Sjúkraliði óskast til starfa á lyflækningadeild B7 í Fossvogi. Upphaf starfs og starfshlutfall er samkomulag.
Deildin er 16 rúma bráðalegudeild almennra lyflækninga og einnig sérhæfð bráðadeild fyrir gigtarsjúklinga. Á deildinni starfa um 70 manns í þverfaglegu teymi. Góður starfsandi er ríkjandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði og markvisst er unnið að umbótum og framþróun.
Við sækjumst eftir sjúkraliðum sem búa yfir þekkingu og reynslu sem og nýútskrifuðum sjúkraliðum í okkar góða hóp því við teljum gott að hafa breidd í þekkingu og reynslu. Starfið býður upp á tækifæri til að þróa með sér mikla faglega þekkingu og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum. Góð aðlögun er í boði. Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Rögnu Maríu, deildarstjóra og Rut, aðstoðardeildarstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hjúkrun sjúklinga í samvinnu við aðra fagaðila
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Stuðlar að góðum samstarfsanda
Hæfniskröfur
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Áhugi og hæfni til að starfa í teymi
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Jákvætt viðmót og samskiptahæfileikar
- Íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi (ef við á). Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.07.2022
Nánari upplýsingar veitir
Ragna María Ragnarsdóttir
-
[email protected]
-
825 5080
Rut Tryggvadóttir
-
[email protected]
-
825 9309