Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á bráðageðdeild 32C
Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á bráðageðdeild 32C
Í boði er spennandi og þroskandi starf fyrir áhugasama!
Um er að ræða 100% starf ráðgjafa/ stuðningsfulltrúa sem er laust 1. september 2022 eða eftir samkomulagi.
Á bráðageðdeild er veitt sérhæfð þjónusta í meðferð og umönnun einstaklinga með bráð geðræn einkenni. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar og hugmyndarfræði um geðgjörgæslu eru í fyrirrúmi. Á deildinni starfa um 50 starfsmenn í þverfaglegu teymi. Vinnuandinn einkennist af samvinnu, lipurð, stuðningi, metnaði og góðum liðsanda. Unnið er á breytilegum dag-, kvöld- og næturvöktum og aðra hverja helgi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Virk þátttaka í hjúkrun og meðferð inniliggjandi sjúklinga
- Hjúkrun/ umönnun fólks með bráð geðræn einkenni
- Virk þátttaka í varnarteymi geðsviðs og áhugi á öryggi sjúklinga og starfsmanna
- Þátttaka í þverfaglegu samstarfi
- Samskipti, hvatning, leiðbeiningar og víðtækur stuðningur
- Ýmis fjölþætt þátttaka í umbótastarfi
Hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, að lágmarki stúdentspróf
- Viðbótarmenntun eða reynsla af vinnu með einstaklingum með geðrænan vanda er æskileg
- Góð samstarfshæfni, færni í samskiptum, skapandi hugsun og frumkvæði í starfi
- Jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
- Góð almenn tölvukunnátta
- Íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi, starfsmaður, almenn störf, nemi
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.08.2022
Nánari upplýsingar veitir
Jóhanna Guðmunda Þórisdóttir
-
[email protected]
-
543 4437/ 825 1507
Snæfríður Jóhannesdóttir
-
[email protected]
-
543 4036/ 824 6022