Hjúkrunarfræðingur óskast á nýja bráðadagdeild Landspítala
Hjúkrunarfræðingur óskast á nýja bráðadagdeild Landspítala
Taktu þátt í uppbyggingu á nýrri starfsemi dagdeildar bráðalyflækninga með öflugu teymi lækna og hjúkrunarfræðinga. Um er að ræða spennandi nýjung í starfsemi spítalans með jákvæðu og skemmtilegu fólki.
Dagdeildin er opin í dag frá kl. 8-16 en stefnt er að því að hafa hana opna til kl. 20 virka daga og frá kl. 10-18 um helgar.
Við sækjumst eftir jákvæðum, sjálfstæðum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum. Í boði er einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reyndra fagaðila. Upphaf starfs, starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulag en æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Mat á hjúkrunarþörfum, gerð áætlunar og meðferð skjólstæðinga deildarinnar
- Þróun verkferla á nýrri einingu í samstarfi við starfsfólk deildarinnar
- Skrá hjúkrun í samræmi við reglur Landspítala
- Fylgjast með nýjungum í hjúkrun
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Stuðla að góðum starfsanda
Hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Góð samstarfshæfni og færni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
- Áhugi á að starfa í krefjandi og skemmtilegu umhverfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun
Starfshlutfall er 40-100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.08.2022
Nánari upplýsingar veitir
Sólveig Hólmfr Sverrisdóttir - [email protected] - 824 5945