Sumarafleysing skrifstofa fjármála
Sumarafleysing skrifstofa fjármála
Laust er til umsóknar afleysing í starf gjaldkera, bókara og í innheimtu við Sjúkrahúsið á Akureyri. Um er að ræða 100% stöðu á skrifstofu fjármála.
Næsti yfirmaður er Rannveig Jóhannsdóttir, forstöðumaður skrifstofu fjármála.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst meðal annars:
- Skráning reikninga í bókhaldskerfi
- Greiðsla reikninga
- Móttaka uppgjöra
- Útsending reikninga í samþykkt
- Flugpantanir
- Innheimta ósjúkratryggðra
- Reikningagerð og færsla innborgana ásamt öðrum tilfallandi verkefnum
Hæfniskröfur
- Viðkomandi þarf að vera ábyrgðarfullur og með góða hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góða tölvufærni
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjölur hafa gert.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum. Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is. Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyrir eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI. Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2023
Nánari upplýsingar veitir
Rannveig Jóhannsdóttir
-
[email protected]
-
463-0100
Erla Björnsdóttir
-
[email protected]
-
463-0100