Ljósmóðir í sumarafleysingar á HSN Sauðárkróki
Ljósmóðir í sumarafleysingar á HSN Sauðárkróki
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Sauðárkróki óskar eftir ljósmóður í sumarafleysingar á heilsugæslustöð.
Æskilegt er að umsækjendur geti leyst af í sex vikur. Til greina kemur að ráða til skemmri tíma.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum ljósmæðra samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum stofnunarinnar.
Hæfniskröfur
- Fullgilt hjúkrunar- og ljósmæðrapróf
- Íslenskt starfsleyfi
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og sveigjanleiki
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði. Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini, íslenskt hjúkrunar- og ljósmóðursleyfi og náms- og ferilskrá. Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - samvinna - virðing.
Starfshlutfall er 85%
Umsóknarfrestur er til og með 06.02.2023
Nánari upplýsingar veitir
Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir, Yfirhjúkrunarfræðingur - [email protected] - 432 4220