Sumarafleysing - Sjúkraliðar á slysa- og bráðamóttökudeild
Sumarafleysing - Sjúkraliðar á slysa- og bráðamóttökudeild
Sumarafleysing
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða sjúkraliða á slysa-og bráðamóttökudeild í sumarafleysingar. Unnið er í vaktavinnu. Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt.
Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og hér ríkir góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki. Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu. Starf á bráðadeild er umfangsmikið, fjölbreytt og lærdómsríkt. Starfið felur í sér móttöku og aðhlynningu sjúklinga sem leita á bráðadeild, bæði vegna sjúkdóma og slysa. Þar fer einnig fram brotaendurkoma. Sjúkraliðar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar. Leiðarljós HSS í þjónustu og starfi er umhyggja, fagmennska og virðing.
Hæfniskröfur
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Faglegur metnaður og vandvirkni
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hlýtt og jákvætt viðmót
- Starfsreynsla er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað um leið og ráðið hefur verið í starfið. Umsókn gildir í 6 mánuði.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 30.000 manns.
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.02.2023
Nánari upplýsingar veitir
Ásta Kristbjörg Bjarnadóttir - [email protected] - 4220500