Hoppa yfir valmynd
HeilbrigðisþjónustaHöfuðborgarsvæðiðHeilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Skemmtilegt sumarstarf - Hjúkrunarfræðingur

Skemmtilegt sumarstarf - Hjúkrunarfræðingur

Heimahjúkrun HH leitar eftir hjúkrunarfræðingi í sumarstarf. Um er að ræða tímabundið vaktavinnustarf á morgun-, kvöld- og helgarvaktir, starfshlutfall er 50-90% eða skv samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. maí eða eftir nánara samkomulagi.

Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellsumdæmi og er með aðsetur í nýju og stórglæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ.  Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er haft að leiðarljósi. Einstaklingsmiðuð heimahjúkrun er sérsniðin að þörfum hvers og eins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hjúkrunarfræðingur vinnur náið með teymisstjóra. Starfssvið hjúkrunarfræðings í heimahjúkrun er að veita víðtæka hjúkrun í heimahúsum vegna langvinnra sjúkdóma, andlegrar og líkamlegrar skerðingar. Hjúkrunarfræðingur styður við einstaklinga og aðstandendur þeirra ásamt því að skipuleggja og veita þá hjúkrun sem þörf er á hverju sinni. Hann er einnig í samskiptum og samvinnu við aðrar sjúkrastofnanir og heilbrigðisstéttir með hagsmuni skjólstæðings að leiðarljósi.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi 
  • Sjálfstæði í starfi 
  • Faglegur metnaður og áhugi á teymisvinnu 
  • Mikil samskiptahæfni og rík þjónustulund 
  • Fjölbreytt reynsla af hjúkrun er æskileg 
  • Góð almenn tölvuþekking
  • Gilt ökuleyfi 
  • Hreint sakavottorð 
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Stéttarfélag er Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. 

Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið.

Starfshlutfall er 50-90%

Umsóknarfrestur er til og með 11.04.2023

Nánari upplýsingar veitir

Hildur Sigurjónsdóttir - [email protected]

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum