Hoppa yfir valmynd
HeilbrigðisþjónustaSuðurlandHeilbrigðisstofnun Suðurlands

Sjúkraliðar/sjúkraliðanemar óskast í sumarstörf á Bráðamóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurlands

Sjúkraliðar/sjúkraliðanemar óskast í sumarstörf á Bráðamóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurlands

  • Sjúkraliði óskast til starfa á bráðamóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Um er að ræða hjúkrun sjúklinga á bráðamóttöku HSU þar sem öll bráðatilvik koma inn. Sjúklingar tilheyra öllum aldurshópum og koma hvenær sem er sólarhringsins, sem gerir bráðamóttökuna að spennandi vinnustað með mikið af lærdómstækifærum.
  • Um er að ræða fjölbreytt starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.
  • Mikið er lagt upp úr góðri samvinnu allra starfshópa þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi.
  • Um er að ræða vaktavinnu.

Hæfniskröfur

  • Sjúkraliðanám frá viðurkenndri menntastofnun
  • Starfsleyfi landlæknis
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf
  • Reynsla af vinnu á bráðamóttöku er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

  • Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi og fyrri störf.

Starfshlutfall er 40-100%

Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023

Nánari upplýsingar veitir

Birna Gestsdóttir - [email protected] - 432-2115

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum