Móttökuritari - sumarafleysing á Höfn í Hornafirði
Móttökuritari - sumarafleysing á Höfn í Hornafirði
- Laust er til umsóknar starf móttökuritara í 5 vikur í sumar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands Hornafirði .
- Tímabil ráðningar er frá 5. júní til 8. júlí 2023.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka, afgreiðsla og samskipti við skjólstæðinga
- Símsvörun, ýmiss konar umsýsla og skráning gagna auk samskipta við aðrar deildir HSU
Hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskilegt
- Starfið krefst hæfni og lipurðar í samskiptum, trúmennsku og nákvæmni í vinnubrögðum
- Viðkomandi þarf að hafa góð tök á vinnu við tölvur
- Viðkomandi þarf að hafa gott vald á íslensku máli og geta átt góð tjáskipti á ensku.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi hafa gert.
Um er að ræða dagvinnu
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Friðþóra E Þorvaldsdóttir - [email protected] - 4322900