Móttökuritari óskast til sumarafleysinga á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vík
Móttökuritari óskast til sumarafleysinga á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vík
Vilt þú starfa á framúrskarandi vinnustað í sumar ?
Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða starfsmann í sumarafleysing móttökuritara við Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vík á Mýrdal
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka, afgreiðsla og samskipti við skjólstæðinga
- Afgreiðsla og umsýsla í lyfsölu
- Símsvörun, ýmiss konar umsýsla og skráning gagna auk samskipta við aðrar deildir HSU
Hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskilegt
- Starfið krefst hæfni og lipurðar í samskiptum, trúmennsku og nákvæmni í vinnubrögðum
- Viðkomandi þarf að hafa góð tök á vinnu við tölvur. Viðkomandi þarf að hafa gott vald á íslensku máli og þarf að geta átt tjáskipti á ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi hafa gert.
- Um er að ræða dagvinnu
- Einstaklingar óháð kyni hvattir til þess að sækja um starfið
- Náms- og starfsferilskrá fylgi umsókn
Starfshlutfall er 60%
Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Helga Þorbergsdóttir - [email protected] - 432-2800