Hoppa yfir valmynd
HeilbrigðisþjónustaHöfuðborgarsvæðiðLandspítali

Ljósmóðir óskast til starfa á fæðingarvakt

Ljósmóðir óskast til starfa á fæðingarvakt

Laus eru til umsóknar störf ljósmæðra á fæðingarvakt Landspítala. Á deildinni er veitt þjónusta við konur í eðlilegri fæðingu auk þjónustu við konur með áhættuþætti sem þurfa sérhæft eftirlit í fæðingu. 

Á deildinni starfa um 80 manns og er fagmennska og teymisvinna höfð að leiðarljósi. Um er að ræða störf í vaktavinnu og er starfshlutfallið 40-100%. Ráðið verður í störfin eftir samkomulagi og möguleiki á starfi yfir sumartímann eingöngu. Góð aðlögun með reyndum ljósmæðrum í boði.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur enn orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umönnun kvenna í fæðingu og umönnun nýbura
  • Símaráðgjöf og móttaka kvenna í fæðingu og kvenna með bráð vandamál á síðari hluta meðgöngu
  • Þátttaka í faglegri þróun umönnunar sem veitt er á deildinni
  • Klínísk kennsla ljósmóðurnema og læknanema á deild

Hæfniskröfur

  • Íslenskt ljósmóðurleyfi
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að vinna í teymi
  • Góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
  • Reynsla af ljósmóðurstörfum er kostur
  • Reynsla af hjúkrunarstörfum er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. 

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.   

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Öllum umsóknum verður svarað.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, ljósmóðir 

Starfshlutfall er 40-100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.04.2023

Nánari upplýsingar veitir

Birna Gerður Jónsdóttir, Yfirljósmóðir - [email protected] - 543 3296

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum