Hoppa yfir valmynd
HeilbrigðisþjónustaHöfuðborgarsvæðiðLandspítali

Almennur læknir/ tímabundið starf

Almennur læknir/ tímabundið starf

Almennur læknir/ tímabundið starf á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga. Starfið er tímabundið til eins árs en möguleiki er á ráðningu til skemmri tíma, en þó ekki skemur en 6 mánuði. Starfið veitist frá 1. september 2023 eða eftir nánara samkomulagi.

Unnið er í náinni samvinnu við sérfræðilækna í krabbameinslækningum og felur starfið í sér þverfaglega teymisvinnu með fjölmörgum öðrum sérgreinum læknisfræðinnar, s.s. skurðlækningum, lyflækningum, myndgreiningu og meinafræði. Einnig er góð samvinna við aðrar starfsstéttir sem sinna krabbameinssjúklingum.

Starfið nýtist afar vel þeim sem hafa hug á frekari sérnámi í krabbameinslækningum en einnig þeim sem hugsanlega hyggja á frekara sérnám í öðrum greinum þar sem starfið á dag- og göngudeildinni er mjög fjölbreytt. 

Starfsumhverfið á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga er lærdómsmiðað. Læknirinn fær sérstaka starfslýsingu og skipulagða handleiðslu sérfræðilæknis. Fagleg árvekni og endurskoðun klínískra leiðbeininga og verkferla er hluti af fagmennsku deildarinnar. Vinnulagið á deildinni byggir á samvinnu fjölmargra starfsstétta með það að markmiði að gera meðferð og þjónustu við einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein og ættingja þeirra skilvirkari.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka og þjálfun í ráðgjöf varðandi meðferð þeirra sem nýlega eru greindir með krabbamein, gerð meðferðaráætlunar og eftirlit með sjúklingum á meðan meðferð stendur
  • Greina og meðhöndla bráðavandamál tengd krabbameinum og lyfjameðferð
  • Þátttaka í samvinnu ólíkra sérgreina læknisfræðinnar s.s. eins og samráðsfundum
  • Þátttaka í kennslu og vísindastarfi

Hæfniskröfur

  • Almennt íslenskt lækningaleyfi
  • Sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi lokið við upphaf starfs
  • Framúrskarandi læknisfræðileg þekking
  • Góð færni og lipurð í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
  • Öguð vinnubrögð
  • Áhugi á að bæta sig í faglegu klínísku umhverfi
  • Gott vald á íslensku máli

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að. 

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Almennur læknir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.06.2023

Nánari upplýsingar veitir

Agnes Smáradóttir, yfirlæknir - [email protected] - 825 5028

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum