Sálfræðingur - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana
Sálfræðingur - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana
Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana auglýsir eftir sálfræðingi fullorðinna í 80-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Við leitum að öflugum sálfræðingi sem er tilbúinn að takast á við krefjandi og spennandi verkefni þar sem þverfagleg nálgun og sérhæfð þjónusta er veit.. Markmið Geðheilsuteymi Taugaþroskaraskana er að stuðla að og viðhalda bata og auka færni skjólstæðings þar sem hans óskir, þarfir og gildi eru í fyrirúmi. Teymið leggur jafnframt mikla áherslu á góða þverfaglegri samvinnu þar sem sálfræðingur mun vinna með öðrum fagaðilum innan teymisins og utan.
Við Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana starfa reynslumiklir einstaklingar þar sem lögð er áhersla á að þjálfa upp starfsmenn, veita persónubundinn stuðning og handleiðslu. Góður starfsandi er í teyminu og gott vinnuumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sálfræðiþjónusta fyrir einstaklinga 18 ára og eldri.
- Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda, gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf.
- Einstaklings- og hópmeðferð
- Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla
- Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði
- Önnur tilfallandi verkefni
- Viðkomandi mun starfa í þverfaglegum teymum í náinni samvinnu við starsfólk heilsugæslustöðva, félagsþjónustu, geðsviðs LSH, annarra stofnana og samtaka.
Hæfniskröfur
- Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði
- 5 ára starfsreynsla af klínísku starfi
- Reynsla af greiningu og meðferð fullorðinna með geðrænan vanda
- Þekking og reynsla af gagnreyndum aðferðum, s.s. hugrænni atferlismeðferð, DAM og áfallameðferð
- Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu
- Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
- Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
- Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.06.2023
Nánari upplýsingar veitir
Bjargey Una Hinriksdóttir - [email protected] - 513-6750