Hoppa yfir valmynd
HeilbrigðisþjónustaHöfuðborgarsvæðiðLandspítali

Aðstoðardeildarstjóri á meðferðargeðdeild geðrofssjúkdóma

Aðstoðardeildarstjóri á meðferðargeðdeild geðrofssjúkdóma

Við leitum að öflugum og framsæknum liðsmanni í fjölbreytt, krefjandi og skapandi starf á frábærum vinnustað.

Deildin sérhæfir sig í móttöku, meðferð og endurhæfingu sjúklinga með geðrofssjúkdóma. Áhersla er lögð á batamiðaða þjónustu, stuðning við aðstandendur og skaðaminnkandi nálgun í allri meðferðarvinnu. Mikið er unnið í teymisvinnu og mörg tækifæri gefast til að vaxa í starfi. Á deildinni ríkir einstaklega góður starfsandi og er rík áhersla lögð á að nýtt starfsfólk fái vandaða aðlögun.

Unnið er í vaktavinnu og starfshlutfall er 80-100%. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf eigi síðar en 1. júlí 2023

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinnur í samráði við hjúkrunardeildarstjóra að skipulagningu á starfsemi deildar
  • Er leiðandi í klínísku starfi, öryggis- og gæðastarfi og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu og framþróun í hjúkrun
  • Ber ábyrgð á starfsemi, mönnun og rekstri deildar í fjarveru og í samráði við hjúkrunardeildarstjóra
  • Er ábyrgur fyrir skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar í fjarveru hjúkrunardeildarstjóra
  • Skipuleggur móttöku og verknám hjúkrunarfræðinema
  • Ber ábyrgð á verkefnum sem hjúkrunardeildarstjóri felur honum samkvæmt sérstakri verkefnalýsingu
  • Vinnur náið með deildarstjóra að mótun liðsheilda

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
  • Einlægur áhugi á geðhjúkrun og skaðaminnkun skilyrði
  • Jákvætt hugarfar og framúrskarandi samskiptahæfni skilyrði
  • Færni til að vinna sjálfstætt, skipuleggja og forgangsraða verkefnum
  • Metnaður og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
  • Góð tölvukunnátta og færni í skráningu
  • Reynsla af stjórnun og forystu æskileg
  • Reynsla af hjúkrun einstaklinga með samslátt vímuefna- og geðvanda æskileg
  • Þekking á verkefnastjórnun og umbótastarfi kostur æskileg

 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.  

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Öllum umsóknum verður svarað.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.06.2023

Nánari upplýsingar veitir

Margrét Manda Jónsdóttir - [email protected] - 824 6035

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum