Hoppa yfir valmynd
SérfræðistörfNorðurlandMatvælastofnun

Eftirlitsdýralæknir í Norðvesturumdæmi

Eftirlitsdýralæknir í Norðvesturumdæmi

Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsdýralækni til starfa í Norðvesturumdæmi með aðsetur á Sauðárkróki. Um er að ræða 100% starf og æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Eftirlitsdýralæknir sinnir fyrst og fremst eftirliti skv. gildandi lögum og reglugerðum á sviði matvæla, dýraheilbrigðis og dýravelferðar en einnig heilbrigðiseftirliti í sláturhúsum. Eftirlitsdýralæknir sinnir samskiptum við opinberar stofnanir ásamt umsjón með tilteknum málaflokkum á verksviði umdæmisskrifstofunnar, m.a. að vera staðgengill héraðsdýralæknis.

Hæfniskröfur

  • Dýralæknismenntun og dýralæknisréttindi á Íslandi
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi starfað við opinbert eftirlit
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi 
  • Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku er æskileg
  • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á ensku er skilyrði
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Bílpróf er skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Dýralæknafélag Íslands hafa gert.

Umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og afrit af prófskírteini. Nánari upplýsingar um Matvælastofnun er að finna á heimasíðu stofnunarinnar www.mast.is

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 01.06.2023

Nánari upplýsingar veitir

Daníel Haraldsson, héraðsdýralæknir - [email protected] - 5304800

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum