Hjúkrunarfræðingur á HSN Blönduósi
Hjúkrunarfræðingur á HSN Blönduósi
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Blönduósi óskar eftir hjúkrunarfræðingum til starfa á hjúkrunardeild. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Starfshlutfall er samkomulag. Einnig kemur til greina að ráða í skemmri tíma, t.d. í lotur, helgarvinnu eða annað sem hentar bæði umsækjanda og starfseminni.
Unnið er á þrískiptum vöktum. HSN getur útvegað starfsmanni húsnæði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur sem almennur hjúkrunarfræðingur
- Tekur þátt í gæðaverkefnum á deild og þvert á stofnun
Hæfniskröfur
- Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi
- Starfsreynsla í hjúkrun er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og sveigjanleiki
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði. Tekið er á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu stofnunarinnar www.hsn.is laus störf eða á www.starfatorg.is Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini, íslenskt hjúkrunarleyfi og náms- og starfsferilsskrá.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Blönduós:
Á Blönduósi búa tæplega 1000 manns. Bærinn er landfræðilega vel staðsettur, tæplega 3 klst tekur að keyra til Reykjavíkur og 2 klst til Akureyrar. Á Blönduósi er fjögurra deilda leikskóli. Þá er einnig grunnskóli í bænum og einnig boðið upp á dreifnám frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra svo nemendur á framhaldsskólaaldri geti búið lengur heima hjá foreldrum.
Glæsileg sundlaug er á Blönduósi og í sama húsi er einnig líkamsræktarstöð og íþróttasalur.
Blönduós er góður búsetukostur fyrir fjölskyldufólk.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.06.2023
Nánari upplýsingar veitir
Helga Margrét Jóhannesdóttir, Yfirhjúkrunarfræðingur
-
[email protected]
-
432 4133
Viktoría Björk Erlendsdóttir, Deildarstjóri
-
[email protected]
-
432 4100