Hoppa yfir valmynd
HeilbrigðisþjónustaHöfuðborgarsvæðiðLandspítali

Hjúkrunarfræðingur á hjarta-, lungna- og augnskurðdeild

Hjúkrunarfræðingur á hjarta-, lungna- og augnskurðdeild

Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á hjarta-, lungna- og augnskurðdeild 12G við Hringbraut. Um er að ræða framtíðarstarf. Hjúkrun skjólstæðinga deildarinnar er mjög fjölbreytt og krefjandi og snýr að einstaklingum sem farið hafa í aðgerðir vegna sjúkdóma í hjarta og lungum. Einnig sinnir deildin bráðainnlögnum sem tengjast brjóstholi og einstaklingum með augnsjúkdóma sem þarfnast innlagnar. 

Á deildinni starfa um 50 manns í þverfaglegu teymi og frábær starfsandi ríkir á deildinni sem og mikill faglegur metnaður. Margvísleg tækifæri eru til að þróa með sér góða þekkingu á hjúkrun brjóstholsskurðsjúklinga og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum sem og tækifæri til náms. 

Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum og veitum góða aðlögun. Unnið er á þrískiptum vöktum og er starfshlutfall 80-100% og eru störfin laus nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. 

Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Bera ábyrgð, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð í samræmi við þarfir skjólstæðinga deildarinnar
  • Skipuleggja og veita fræðslu til sjúklinga og aðstandenda þeirra
  • Virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu verkefna á deild
  • Fylgjast með nýjungum í hjúkrun
  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
  • Áhugi á að starfa í krefjandi og skemmtilegu umhverfi
  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
  • Reynsla af starfi á hjarta-, lungna- og augnskurðdeild er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að. 

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf, þannig að störf í vaktavinnu verði eftirsóknarverðari. 

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur

 

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.06.2023

Nánari upplýsingar veitir

Þórgunnur Jóhannsdóttir, deildarstjóri - [email protected] - 824-6025

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum