Hoppa yfir valmynd
Önnur störfHöfuðborgarsvæðiðLandspítali

Sumarstörf 2023 - Störf í öryggisþjónustu

Sumarstörf 2023 - Störf í öryggisþjónustu

Rekstrarþjónusta óskar eftir starfsfólki í sumarvinnu í öryggisvörslu. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og býður upp á lifandi starfsumhverfi og gefandi samstarf. Öryggisþjónusta skiptist í eftirlit og vaktmiðstöð. Eftirlit felst meðal annars í að bregðast við útköllum á deildir, reglulegum eftirlitshringjum og aðstoð við rekstrarþjónustu eftir þörfum. Vaktmiðstöð fylgist með öryggis- og eftirlitskerfum spítalans.

Leitað er eftir jákvæðum, drífandi og lausnamiðuðum einstaklingum með ríka þjónustulund og sem eru sveigjanlegir í starfi. Viðkomandi þarf að búa yfir mikilli samskiptahæfni og getu til að mæta þörfum ólíkra hópa, hafa auga fyrir umbótum og stuðla að jákvæðum starfsanda og starfsumhverfi á fjölþjóðlegum vinnustað. 

Starfsemi rekstrarþjónustu er fjölbreytt en meginhlutverk hennar er að tryggja góða þjónustu fyrir allar deildir spítalans, s.s. flutningsþjónustu, öryggisþjónustu, símaþjónustu, móttökuþjónustu og ýmsa almenna þjónustu sem styður við daglega starfsemi á spítalanum.

Leitast er eftir fólki í vaktavinnu. Unnið er á 8 tíma vöktum, allan sólahringinn. Vinnuvika starfsfólks í dagvinnu er nú 36 stundir. Vinnuvika í fullri vaktavinnu er einnig 36 stundir en getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmið með styttingu vinnuvikunnar er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf, þannig að störf í vaktavinnu verði eftirsóknarverðari.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Öryggisgæsla, eftirlit og vöktun öryggis- og hússtjórnarkerfa spítalans
  • Þjónusta við aðrar deildir
  • Móttaka þjónustubeiðna og upplýsingaþjónusta
  • Viðbrögð við neyðartilfellum
  • Flutningar á sýnum og blóði eftir opnunartíma flutningaþjónustu
  • Aðstoð við reglulega flutninga 

Hæfniskröfur

  • Stúdentspróf og / eða reynsla af öryggisgæslu
  • Leiðtogahæfni, framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
  • Jákvæðni, hvetjandi hugsun og stuðlar að góðum starfsanda
  • Metnaður, frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt og í teymum
  • Lausnamiðuð nálgun
  • Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst
  • Gerð er krafa um 20 ára lágmarksaldur
  • Góð íslenskukunnátta
  • Gild ökuréttindi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. 

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur. 

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Stjórnendur hafa samband við þá umsækjendur sem þeir hafa hug á að bjóða í viðtal, öllum umsóknum verður svarað.

Starfsmerkingar: Þjónustustörf, öryggisgæsla, öryggisfulltrúi, sumarstarf

 

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 01.06.2023

Nánari upplýsingar veitir

Hrafnhildur Jónsdóttir - [email protected]
Daníel Helgason - [email protected]

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum