Hoppa yfir valmynd
HeilbrigðisþjónustaHöfuðborgarsvæðiðHeilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu

Sérfræðingur í heimilislækningum - HH Seltjarnarnes og Vesturbæ

Sérfræðingur í heimilislækningum - HH Seltjarnarnes og Vesturbæ

Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ leitar að öflugum sérfræðingi í heimilislækningum í ótímabundið starf, starfshlutfall er 100% eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða ábyrgðarmikið starf á spennandi vettvangi fyrir lækni sem hefur áhuga á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júlí eða eftir nánara samkomulagi.  Til greina kemur að ráða almennan lækni fáist ekki sérfræðingur í starfið.

Við leitum að lækni sem hefur áhuga á að taka þátt í fjölbreyttu, fróðlegu og krefjandi starfi heimilislækninga. Heimilislæknir mun starfa í þverfaglegu teymi með öðrum læknum, hjúkrunarfræðingum og fagfólki í skemmtilegu starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. 

Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustu þar sem veitt er fyrstu línu þjónusta og geðheilbrigðismál eru í mikilli  framþróun innan heilsugæslunnar. 

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is) 

Helstu verkefni og ábyrgð

Heimilislæknir sinnir einstaklingum á öllum aldri og er starfið víðtækt og krefjandi. Heimilislæknir sinnir almennum lækningum, mæðravernd, ungbarnaeftirliti, heilsuvernd og síðdegisvakt. Læknir á heilsugæslustöð er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi. 

Hæfniskröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi
  • Sérfræðimenntun í heimilislækningum
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
  • Reynsla af kennslu er æskileg
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu
  • Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands heilsugæslulæknar hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er -100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.06.2023

Nánari upplýsingar veitir

Emilía Petra Jóhannsdóttir - [email protected] - 5136100

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum