20. október 2026 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

15 milljóna króna styrkur til að efla þátttöku fatlaðs fólks í notendaráðum um land allt

{image.Description}
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar.

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur ákveðið að veita Landssamtökunum Þroskahjálp 15 milljóna króna styrk til að efla starfsemi notendaráða fatlaðs fólks um land allt. Notendaráð eru mikilvægur vettvangur fyrir fatlað fólk til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hafa áhrif á skipulag og framkvæmd þjónustu.

Markmiðið með styrkveitingunni er að styrkja þátttöku fatlaðs fólks við ákvarðanatöku um þjónustu sem það varðar og tryggja að notendaráðin verði virkur vettvangur samráðs milli fatlaðs fólks og sveitarfélaga.

Með styrknum mun starfsmaður Þroskahjálpar sinna ráðgjöf, stuðningi og eftirfylgni við starfsemi notendaráðanna. Ætlunin er að efla starfandi notendaráð, styðja við stofnun ráða þar sem þau eru ekki til staðar og auðvelda fötluðu fólki að taka virkan þátt í starfi þeirra.

Hluti af landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks

Styrkveitingin er liður í framkvæmd landsáætlunar í málefnum fatlaðs fólks. Þar er meðal annars lögð áhersla á að samráðshópar og notendaráð verði starfrækt um allt land og að efla og virkja fatlað fólk til að taka þátt í starfsemi þeirra.

Verkefnið byggir jafnframt á 29. grein samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem kveður á um að tryggja skuli fötluðu fólki réttindi og tækifæri til þess að taka fullan þátt í opinberri starfsemi án mismununar og til jafns á við aðra.