Hönnunarstaðall fyrir Stjórnarráð Íslands
![Merki ráðuneytanna](/library/X-Honnunarstadall-STJR/merki-sma.png)
Merki ráðuneytanna
Stjórnarráð Íslands notar skjaldarmerki Íslands sem merki sitt. Merkið skal notað í öllu efni sem kemur frá Stjórnarráðinu.
![Letur](/library/X-Honnunarstadall-STJR/letur-sma.png)
Letur
Aðalletur ráðuneytisins er FiraGo. Það er notað í fyrirsagnir, titla og meginmál. Letrið hentar bæði vel fyrir skjá- og prentmiðla.
![Litur og myndir](/library/X-Honnunarstadall-STJR/litir-sma.png)
Litur og myndir
Aðallitur Stjórnarráðsins er himinblár. Hann er til í nokkrum tónum. Þegar þarf, skal nota hárauðan sem áherslulit.
![Bréfsefni og nafnspjöld](/library/X-Honnunarstadall-STJR/bref-sma.png)
Bréfsefni og nafnspjöld
Á umslögum og bréfsefnum er Skjaldarmerkið ávallt í efra vinstra horninu og nafn ráðuneytis er ávallt í neðra vinstra horninu.
![Kynningar](/library/X-Honnunarstadall-STJR/kynning-sma.png)
Kynningar
Kynningar geta verið í öllum litapallettum ráðuneytisins en fylgja ávallt einni pallettu. Litapallettum er ekki blandað saman.
![Rit og skýrslur](/library/X-Honnunarstadall-STJR/skyrslur-sma.png)
Rit og skýrslur
Rit og skýrslur geta verið í öllum litapallettum ráðuneytisins en fylgja ávallt einni pallettu. Litapallettum er ekki blandað saman.
![Auglýsingar og annað kynningarefni](/library/X-Honnunarstadall-STJR/auglysingar-sma.png)
Auglýsingar og annað kynningarefni
Auglýsingasniðmát má nálgast hjá viðkomandi ráðuneyti. Dagblaðaútgáfur gefa upplýsingar um sniðmát en þau eru einungis til fyrir InDesign.
![Gögn fyrir sendiskrifstofur](/library/X-Honnunarstadall-STJR/sendiskrifst-sma.png)
Gögn fyrir sendiskrifstofur
Sendiskrifstofur utanríkisþjónustunnar fylgja hönnunarstaðli Stjórnarráðsins fyrir nafnspjöld, umslög og annað kynningarefni.
Hönnunarstaðall Stjórnarráðsins
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.