Hoppa yfir valmynd
26. mars 2008 Forsætisráðuneytið

Auglýsing um framboð og kjör forseta Íslands

Forsætisráðuneytið hefur í dag látið birta svofellda auglýsingu um framboð og kjör forseta Íslands:

Kjör forseta Íslands skal fara fram laugardaginn 28. júní 2008.

Framboðum til forsetakjörs skal skila til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, ásamt samþykki forsetaefnis, nægilegri tölu meðmælenda og vottorðum yfirkjörstjórna um að þeir séu kosningarbærir, eigi síðar en fimm vikum fyrir kjördag.

Forsetaefni skal hafa meðmæli minnst 1500 kosningarbærra manna, en mest 3000, er skiptist þannig eftir landsfjórðungum:

Úr Sunnlendingafjórðungi (þ.e. Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Ásahreppur, Vestmannaeyjabær, Flóahreppur, Sveitarfélagið Árborg, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hveragerðisbær, Sveitarfélagið Ölfus, Grindavíkurbær, Sandgerðisbær, Sveitarfélagið Garður, Reykjanesbær, Sveitarfélagið Vogar, Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðabær, Sveitarfélagið Álftanes, Kópavogsbær, Reykjavíkurborg, Seltjarnarneskaupstaður, Mosfellsbær, Kjósarhreppur, Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshreppur og Borgarbyggð sunnan Hvítár) séu minnst 1.198 meðmælendur, en mest 2.396.

 

Úr Vestfirðingafjórðungi (þ.e. Borgarbyggð vestan Hvítár, Eyja- og Miklaholtshreppur, Snæfellsbær, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit, Stykkishólmsbær, Dalabyggð, Reykhólahreppur, Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur, Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð og Bæjarhreppur) séu minnst 69 meðmælendur, en mest 137.

 

Úr Norðlendingafjórðungi (þ.e. Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Sveitarfélagið Skagaströnd, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagafjörður, Akrahreppur, Fjallabyggð, Grímseyjarhreppur, Dalvíkurbyggð, Arnarneshreppur, Hörgárbyggð, Akureyrarkaupstaður, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Grýtubakkahreppur, Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur, Aðaldælahreppur, Norðurþing vestan Reykjaheiðar og Tjörneshreppur) séu minnst 169 meðmælendur, en mest 339.

 

Úr Austfirðingafjórðungi (þ.e. Norðurþing austan Reykjaheiðar, Svalbarðshreppur, Langanesbyggð, Vopnafjarðarhreppur, Fljótsdalshreppur, Fljótsdalshérað, Borgarfjarðarhreppur, Seyðis-fjarðarkaupstaður, Fjarðabyggð, Breiðdalshreppur, Djúpavogshreppur og Sveitarfélagið Hornafjörður) séu minnst 64 meðmælendur, en mest 128.

 

Auglýsingin er gefin út samkvæmt lögum um framboð og kjör forseta Íslands, nr. 36/1945, með síðari breytingum.

Reykjavík 25. mars 2008



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum