Hoppa yfir valmynd
20. október 2011 Matvælaráðuneytið

Rækjuveiðar hefjast að nýju í Ísafjarðardjúpi

Nr. 54/2011

 

Rækjuveiðar hefjast að nýju í Ísafjarðardjúpi

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur að fenginni ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar heimilað 1000 tonna veiði á rækju í Ísafjarðardjúpi. Níu ára hlé hefur verið á rækjuveiði á svæðinu og áfram gildir bann við rækjuveiði á öðrum innfjarðasvæðum.

Í árlegri stofnmælingu Hafrannsóknastofnunarinnar sem lauk 5. október sl. kom fram veruleg hækkun stofnvísitölu rækju á Skjálfanda og í Djúpi. Á fyrrnefnda svæðinu er rækjan þó mjög smá og því leggur stofnunin til að ekki verði hafnar veiðar á svæðinu.

Í Ísafjarðardjúpi er aftur á móti lagt til að opnað verði fyrir rækjuveiðar með 1000 tonna aflamarki og er það gert með reglugerð sem birt er í dag. Veiðar mega hefjast á morgun, föstudaginn 21. október.

Aflamark í rækju í Djúpi skiptist á 10 báta en þar af uppfylla aðeins sex skilyrði um leyfi til veiðanna. Tveir bátanna eru í krókaaflamarkskerfi og tveir eru ekki gerðir út í Ísafjarðardjúpi sem er skilyrði leyfisveitingar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum