Hoppa yfir valmynd
25. apríl 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Viðurkenningar á Degi umhverfisins

Dagur umhverfisins
Dagur umhverfisins

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, veitti Náttúrunni.is í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum. Við sama tækifæru voru nemendur í Stórutjarnaskóla í Ljósavatnsskarði og Foldaskóla í Grafarvogi útnefndir Varðliðar umhverfisins. Við athöfnina í dag opnaði umhverfisráðherra einnig nýtt Endurvinnslukort Náttúrunnar.is sem sérstaklega er hannað fyrir snjallsíma og spjaldtölvur.

Kuðungurinn

Náttúran.is hlaut Kuðunginn fyrir samnefnda „framúrskarandi vefsíðu um umhverfismál, og jákvæð áhrif þess á almenning og fyrirtæki.“  Segir í rökstuðningi valnefndar að stofnendur og eigendur hennar séu brautryðjendur á þessum vettvangi „knúin áfram af áhuga og umhyggju fyrir náttúrunni og umhverfinu.“

„Vefsíðan hefur innleitt nýja hugsun í umhverfisvitund Íslendinga. Þar eru á einum stað aðgengilegar leiðbeiningar sem auðvelda fólki að taka upp sjálfbæran og umhverfisvænni lífsstíl.

Vefurinn gengir mikilvægu hlutverki í upplýsingamiðlun og menntun almennings og fyrirtækja. Þar er hægt að fá upplýsingar um umhverfismál heimilisins, um orkusparnað, vistvæn innkaup, betri nýtingu matvæla, sorpflokkun, um hvernig skuli flokka hluti og hvar sé hægt að skila hverjum hlut, þar er að finna skilgreiningar á hverjum flokki fyrir sig, sem oft vefst fyrir fólki. Einnig geymir vefurinn fróðleik um  hvernig hægt sé að forðast hættuleg efni við innkaup á vörum, þar er yfirlit yfir aukaefni í matvörum og skilgreiningar á umhverfismerkingum.“

Þá  opnaði ráðherra í dag nýtt Endurvinnslukort Náttúrunnar.is sem sérstaklega er hannað fyrir snjallsíma og spjaldtölvur. Tilgangur Endurvinnslukortsins er að gefa almenningi  nákvæmt yfirlit yfir hvar á landinu sé tekið við hvaða úrgangsflokkum til endurvinnslu. Það er öllum aðgengilegt, bæði á íslensku og ensku án endurgjalds, og verður að finna á www.natturan.is á næstu dögum. Eigendur Náttúrunnar.is eru Guðrún Tryggvadóttir og Einar Bergmundur Arnbjörnsson.

Verðlaunagripurinn, Kuðungurinn, sem Náttúran.is hlaut að þessu sinni, er eftir listakonuna Ingu Elínu.

Varðliðar umhverfisins

Nemendur í 7. og 8. bekk Stórutjarnaskóla í Ljósavatnsskarði hljóta útnefninguna Varðliðar umhverfisins árið 2012 fyrir vinnu sína að umhverfisþingi skólans. Síðastliðin þrjú ár hafa nemendur og starfsfólk Stórutjarnaskóla staðið fyrir umhverfisþingi og eru allir í skólasamfélagi skólans og nærsveitum boðnir þangað velkomnir. Á hverju þingi fyrir sig hafa einhver brýn málefni í umhverfismálum og málefnum sjálfbærrar þróunar í sveitarfélaginu verið tekin fyrir og utanaðkomandi sérfræðingar fengnir til þess að vera með framsögu.

Á þinginu í ár kynntu nemendVarðliðar umhverfisins.ur í 7. og 8. bekk rannsóknarniðurstöður sínar á sorpflokkun á heimilum í skólasamfélaginu. Verkefnið kalla þau Ert þú í rusli? Er rusl hráefni eða úrgangur? Um er að ræða könnun sem nemendurnir lögðu fyrir 114 heimili í skólasamfélaginu og fengu þeir svör frá um 96% heimilanna. Niðurstöðurnar settu nemendurnir fram í bæklingi ásamt leiðbeiningum þess efnis hvernig best sé að bera sig að við flokkun á sorpi í skólasamfélaginu. Bæklingurinn verður aðgengilegur á heimasíðu skólans en jafnframt verður honum dreift á hvert heimili í umdæmi skólans.


Varðliðar umhverfisins

Nemendur Foldaskóla í Grafarvogi hljóta útnefninguna Varðliðar umhverfisins árið 2012 fyrir þátttöku sína í Norræna loftslagsdeginum árið 2010. Í tilefni dagsins ákváðu nemendur skólans að virkja nærsamfélag sitt til þátttöku í þágu loftslagsmála og búa til eitt stórt tré í skólanum til þess að minna á mikilvægi trjánna, m.a. í loftslagsmálum. Verkefnið fólst í því að nemendur dreifðu í hús upplýsingum um mikilvægi þess að hver og einn gerði sitt til þess að sporna við óheillaþróun í loftslagsmálum. Allir nemendur lituðu laufblað sem fylgdi með og átti viðtakandi þess svo að gera sér ferð með það í skólann og laufga með því grein á trénu sem kallaðist Virðing. Var það undir hverjum og einum komið að velja laufblaði sínu stað þar sem þótti viðeigandi. Heilu fjölskyldurnar komu saman í skólann og ræddu vel og lengi um hvaða grein ætti að verða fyrir valinu. Virðingin laufgaðist hægt og bítandi, enda gerast góðir hlutir hægt.

Við athöfnina í morgun voru nemendur úr Stórutjarnaskóla viðstaddir í gegn um netið og notuðu nemendurnir úr skólunum tveimur tækifærið til að heilsast á óhefðbundinn hátt. 

Skolar-heilsast

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum