Hoppa yfir valmynd
25. apríl 2016 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Viðurkenningar veittar á Degi umhverfisins

Ráðherra ásamt fulltrúum ÁTVR.

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, veitti ÁTVR í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í Grunnskóla Borgarfjarðar Eystri og Dalvíkurskóla útnefndir Varðliðar umhverfisins.

Ráðherra sagði meðal annars í ávarpi sínu að ánægjulegt sé að skynja að fólk er farið að hugsa meira um hegðun sína með tilliti til umhverfismála, enda snúist þau um betri nýtni og góða umgengni allra.

 „Hegðun okkar dagsdaglega skiptir máli hvort sem hún lýtur að vali á fatnaði, matarsóun, orkunotkun eða samgöngum sem allt hefur áhrif á vistsporið“.

Kuðungurinn

ÁTVR er eitt af 103 fyrirtækjum sem tekur þátt í samstarfsverkefni Festu og Reykjavíkurborgar um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og lágmarka neikvæð umhverfisáhrif og hefur fyrirtækið sett sér loftslagsmarkmið til ársins 2030. Umhverfisstjórnun þess byggir á mælingum þar sem m.a. er notast við grænt skorkort og svokallaðan GRI stuðul (Global Reporting Initiative) við skrásetningu aðgerða í þágu samfélagsins. ÁTVR er með grænt bókhald, er þáttakandi í Grænum skrefum í ríkisrekstri og er þegar komið með öll skrefin fyrir höfuðstöðvarnar á Stuðlahálsi en innleiðing í vínbúðum stendur nú yfir.

Fyrirtækið kolefnisjafnar allan útblástur vegna samgangna í rekstri hjá Kolviði og með því að bjóða upp á samgöngusamninga, hefur losun koltvísýring minnkað hjá starfsfólki til og frá vinnu, úr 140 tonnum í 103. Þá er fyrirmyndaraðstaða fyrir göngu- og hjólafólk við starfstöðvar. Einnig hefur verið gripið til aðgerða til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna flutninga. Fyrirtækið býður upp á úrval vistvænna vara, s.s. lífræn vín, og hvetur viðskiptavini sína til að nota margnota burðarpoka. Þá státar ÁTVR af háu endurvinnsluhlutfalli úrgangs sem frá fyrirtækinu kemur.

Segir í rökstuðningi dómnefndar að ÁTVR sé til fyrirmyndar í umhverfisstarfi sínu. „Það státar af öflugu og metnaðarfullu umhverfisstarfi sem ber mælanlegan árangur, auk þess sem samfélagsleg ábyrgð er fyrirtækinu leiðarljós í starfi.“

Verðlaunagripurinn, Kuðungurinn, sem ÁTVR hlaut, er að þessu sinni eftir Kristínu Garðarsdóttur leirlistamann. Þá öðlast stofnunin rétt til að nýta merki verðlaunanna í kynningu á starfsemi sinni.

 

'' Ráðherra ásamt fulltrúum skólanna.

Varðliðar umhverfisins


 

Nemendur í Grunnskóla Borgarfjarðar eystri hlutu útnefninguna Varðliðar umhverfisins fyrir ljósmyndaverkefni sem allir nemendur skólans, í 3. – 10. bekk unnu sameiginlega í tveggja daga gönguferð um Loðmundarfjörð. Nemendum var skipt í hópa þvert á árganga og átti hver hópur að finna myndefni í náttúrunni sem tengdist níu hugtökum sem nemendur og kennarar ákváðu í sameiningu. Sem dæmi um hugtök má nefna gleði, frelsi, orka, kyrrð, auðlind og samspil manns og náttúru. Nemendur unnu myndirnar síðan í tölvu og útbjuggu myndasýningu sem kynnt var fyrir öðrum nemendum skólans.

Valnefnd þótti verkefnið frumlegt og taka á umhverfismálum með óhefðbundnum hætti, þar sem markmiðið var öðru fremur að nemendur fengju að upplifa og njóta þeirrar vellíðunar sem fylgir því að vera úti í náttúrunni. Verkefnið einkenndist jafnframt af samvinnu þvert á aldurshópa en samvinna ólíkra aðila er einmitt mikilvægur hluti af sjálfbærnimenntun. Nemendurnir lögðu mikið á sig við úrvinnslu verkefnisins þar sem þeir gengu um 17 kílómetra leið frá Húsavíkurheiði inn Loðmundafjörð og tókust þannig á við umhverfið og náttúruna um leið og þeir öðluðust dýpri skilning á þeim hugtökum sem verkefnið spannaði.

Fjórir nemendur í 9. bekk Dalvíkurskóla hlutu aukinheldur einstaklingsviðurkenningu, þeir Helgi Halldórsson, Ragnar Freyr Jónasson, Sveinn Margeir Hauksson og Viktor Hugi Júlíusson. Viðurkenninguna fá þeir fyrir rapplagið Ekki menga! sem þeir sömdu í náttúrufræði og gerðu myndband við. Rapplagið hefur jafnframt verið valið sem umhverfissáttmáli skólans. Skilaboðin í myndbandinu eru skýr, við þurfum að hætta að menga til að eyðileggja ekki vistkerfi og umhverfi.

Viðurkenningarnar voru afhentar á hátíðarathöfn sem haldin var í dag á Degi umhverfisins í Listasafni Sigurjóns. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar viðurkenningarhöfum innilega til hamingju. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum