Hoppa yfir valmynd
6. október 2016 Matvælaráðuneytið

Aukið eftirlit, meiri rannsóknir og stefnumótun í fiskeldi

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að hafin skuli vinna við heildar stefnumótun fyrir fiskeldi á Íslandi og að rannsóknir, vöktun og eftirlit skuli aukið.

Aðgerðirnar sem ráðist verður í núþegar eru þríþættar:

  • Sett verður af stað vinna við stefnumótun fyrir allt fiskeldi á Íslandi. Í þeirri vinnu verður m.a. fjallað um umhverfisþætti, stjórnsýslu, gjaldtöku, útgáfu rekstrarleyfa, menntunarmál ásamt efnahags- og samfélagslegum þáttum.
  • Eftirlit verður aukið en Matvælastofnun hefur nýlega ráðið eftirlitsmann á Austfjörðum og á fljótlega verður auglýst eftir eftirlitsmanni á Vestfjörðum.
  • Rannsóknir verða auknar og munu tveir sérfræðingar á vegum Hafrannsóknastofnunar verða ráðnir til starfa á Ísafirði og munu þeir sinna innfjarðarrannsóknum m.a. burðarþolsmælingum og leggja mat á lífríki hvers fjarðar. Auk þess verður sviðsstjóri fiskeldismála hjá Hafrannsóknastofnun staðsettur á Ísafirði frá árinu 2018. Er þetta í takt við tillögur í skýrslu nefndar um átak í byggðamálum á Vestfjörðum sem lögð var fram í ríkisstjórn í lok síðasta mánaðar.

Gunnar Bragi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra; „Fiskeldi er vitanlega mjög spennandi atvinnugrein, um 40% af fiski sem neytt er í heiminum í dag er eldisfiskur og við höfum séð mikinn vöxt bæði í Færeyjum og Noregi. Það eru vissulega mikil sóknarfæri í eldi hér á landi – en við megum ekki fara framúr okkur og verðum að gera hlutina bæði vel og rétt. Við höfum tekið upp ströngustu norsku staðla og erum að stórauka bæði rannsóknir og eftirlit. Jafnframt erum við að setja af stað vinnu við heildar stefnumótun í greininni og vona ég að hún muni liggja fyrir næsta vor.“

Fiskeldi er ört vaxandi atvinnugrein á Íslandi. Á seinustu árum hefur fiskeldi stóraukist bæði í sjó og landi hérlendis en þær tegundir sem um ræðir eru lax, regnbogasilungur, bleikja og senegal flúra svo eitthvað sé nefnt. Mikilvægt er að skilyrði og umgjörð um greinina séu eins og best verður á kosið og í sem mestri sátt bæði við samfélag og  umhverfi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum