Hoppa yfir valmynd
30. desember 2016 Matvælaráðuneytið

Úthlutun styrkja til innviða fyrir rafbíla

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur staðfest tillögur ráðgjafanefndar Orkusjóðs um veitingu styrkja til uppbyggingar innviða fyrir rafbíla. Verkefnið er hluti af sóknaráætlun Íslands í loftslagsmálum sem sett var fram í tengslum við 21. fund aðildarríkja loftslagssamningsins í París (COP21). Miðar verkefnið að því að gert verði átak í að efla innviði fyrir rafbíla á landsvísu til að tryggja aðgengi sem flestra landsmanna að loftslagsvænum samgöngumáta.

Orkusjóði var falið að auglýsa styrkina og gera tillögur til ráðherra um úthlutun til einstakra verkefna. Alls bárust 33 umsóknir, samtals að upphæð kr. 887 m.kr. Til ráðstöfunar voru 67 m.kr. á ári í þrjú ár (2016 – 2018), eða samtals 201 m.kr.

Samkvæmt tillögum ráðgjafarnefndar Orkusjóðs, sem ráðherra hefur staðfest, hljóta 16 verkefni styrk, samtals að fjárhæð 201 m.kr. Með þessum verkefnum verður hægt á næstu tveimur árum að byggja upp heildstætt net hleðslustöðva fyrir flesta landsmenn og þannig stigið stórt skref í rafbílavæðingu Íslands. Er þar bæði um hraðhleðslustöðvar og hefðbundnar hleðslustöðvar að ræða, samtals 42 hraðhleðslustöðvar og 63 hefðbundnar stöðvar. Í dag eru 13 hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla á landinu. Verkefnið nær því til 105 nýrra hleðslustöðva sem byggðar verða upp á tímabilinu. Dreifing stöðvanna sést á neðangreindri mynd.

Þessir styrkir til innviða senda sterk skilaboð um að hafin er stórfelld og markviss uppbygging innviða fyrir rafbíla sem mun m.a. auka til muna möguleika á ferðum út fyrir höfuðborgarsvæðið. Með verkefninu verður net hleðslustöðva jafnt og þétt aukið á landsvísu á næstu árum. Hlutverk ríkisins með þessu verkefni er að styðja við og flýta fyrir þeirri þróun sem þegar er hafin að einhverju marki, sérstaklega á þeim svæðum landsins þar sem markaðslegar forsendur eru ekki enn til staðar. Eins og fram kom í auglýsingu styrkjanna er um fjárfestingarstyrki að ræða og er eitt af skilyrðum styrkveitinga að rekstur viðkomandi innviða verði tryggður í a.m.k. 3 ár.

Af styrkþegunum 16 eru samtals 6 sveitarfélög. Auk þeirra er þar að finna orkufyrirtæki, söluaðila eldsneytis og fleiri aðila. Við tillögugerðina var m.a. litið til þess að best nýting fjármuna fælist í því að innviða-styrkirnir fari til stöndugra aðila þar sem á þessu stigi eru takmarkaðar markaðsforsendur fyrir uppsetningu hleðslustöðva á landsvísu. Taka ber fram að ekki var litið svo á að um styrki til almennra nýsköpunar- og þróunarverkefna væri að ræða, heldur var markmiðið fyrst og fremst að efla með beinum hætti innviði fyrir rafbíla á landsvísu, eins og fram kemur í áðurnefndri sóknaráætlun Íslands í loftslagsmálum. Í þessu samhengi er bent á að hægt er að sækja um styrki vegna verkefna sem lúta með almennum hætti að orkuskiptum, t.d. á sviði nýsköpunar og tækniþróunar, til Orkusjóðs og verða styrkir Orkusjóðs næst auglýstir á fyrri hluta árs 2017. Jafnframt er bent á að þeir 16 innviða-styrkir sem úthlutað var í dag skapa ýmsa möguleika á samstarfi styrkþega við minni aðila, t.d. varðandi tæknilegar útfærslur, hugbúnað og nýsköpun hvers konar, og eru slíkir aðilar hvattir til að setja sig í samband við styrkþega.

Hleðslustöðvar 2016

Orkusjóður tillaga

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum