Hoppa yfir valmynd
6. janúar 2017 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Áætlun vegna dekkjakurls komin út

Börn i fótbolta

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur gefið út áætlun um að kurluðu dekkjagúmmíi verði skipt út fyrir hættuminni efni á leik- og íþróttavöllum.

Samkvæmt ályktun Alþingis frá 2. júní 2016 um bann við notkun gúmmíkurls úr dekkjum á leik- og íþróttavöllum var umhverfis- og auðlindaráðherra falið, í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og Umhverfisstofnun, að móta áætlun sem miðaði að því að kurluðu dekkjagúmmíi yrði skipt út fyrir hættuminni efni á þeim leik- og íþróttavöllum þar sem það væri að finna. Vinnuhópur sem skipaður var í kjölfarið skilaði umhverfis- og auðlindaráðherra tillögu að áætlun í desember sl.         

Útgefin áætlun er í samræmi við tillögur skipaðs vinnuhóps og gerir ráð fyrir því að fyrir árslok 2019 verði búið að skipta kurluðu dekkjagúmmíi út fyrir hættuminni efni á 60% allra leik- og íþróttavalla þar sem laust kurl kemst í beina snertingu við iðkendur, 80% leik- og íþróttavalla fyrir árslok 2022 og að verkinu verði lokið að fullu fyrir árslok 2026.  Til að fylgjast með framvindu mála mun Umhverfisstofnun meta innleiðingu og árangur áætlunarinnar í lok hvers tímabils og upplýsa umhverfis- og auðlindaráðuneytið um stöðu mála.

Eins og fram hefur komið í almennum tilmælum Umhverfisstofnunar frá síðasta ári um dekkjakurl sem fylliefni á gervigrasvöllum inniheldur kurl sem unnið er úr hjólbörðum hættuleg efni í litlu magni. Stofnunin benti á að ætíð er æskilegt að draga úr notkun heilsu- og umhverfisskaðlegra efna. Þá upplýsti stofnunin að rannsóknir hafa ekki sýnt fram á að notkun dekkjakurls valdi heilsufarslegum skaða, en beindi því þó til aðila sem bera ábyrgð á gervigrasvöllum, að við endurnýjun vallanna eða við byggingu nýrra valla verði notaðar aðrar lausnir.

Efnastofnun Evrópu (ECHA) er nú með til sérstakrar skoðunar hvort heilsufarsleg áhætta geti stafað af notkun dekkjakurls sem fylliefnis í gervigrasi. Efnastofnun Evrópu mælir ekki gegn notkun íþróttavalla með dekkjakurli á forsendum núverandi þekkingar.  Ekki eru til reglur eða viðmið sem segja til um hvenær endurnýja eigi velli með gúmmíkurli. Aftur á móti hefur verið áætlað að eðlilegt sé að endurnýja kurl á völlum á um 10 ára fresti, en það fer einnig eftir ásigkomulagi vallanna.

Áætlun um að skipta út dekkjakurli á leik- og íþróttavöllum (pdf-skjal).

Tillaga og skilagrein vinnuhóps (pdf-skjal)

Efni þessarar fréttar tengist Heimsmarkmiði Sameinuðu þjóðanna um verndun jarðarinnar.

Merki markmiðs númer 13, verndun Jarðarinnar

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum