Hoppa yfir valmynd
12. október 2017 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Umsóknarferli vegna verkefnisins Ísland ljóstengt 2018 hafið

Fjarskiptasjóður auglýsir nú umsóknarferli vegna verkefnisins Ísland ljóstengt sem er landsátak stjórnvalda í uppbyggingu ljósleiðarakerfa utan markaðssvæða í dreifbýli.

Fyrsta úthlutun átti sér stað vorið 2016 og skiptust þá 450 milljónir króna milli 14 sveitarfélaga. Önnur úthlutun átti sér stað í upphafi þessa árs og skiptist þá samsvarandi fjárhæð milli 24 sveitarfélaga. Annað fjármagn kemur frá þeim sem tengjast, sveitarfélögunum sjálfum og fjarskiptafyrirtækjum eftir atvikum. Framkvæmd verkefnisins á landsvísu er á undan áætlun.

Mikil áhersla er lögð á hagkvæma samlegð með veituframkvæmdum og nýtingu fyrirliggjandi innviða. Markmiðið er að 99,9% lögheimila og fyrirtækja eigi kost á a.m.k. 100 Mb/s þráðbundinni nettengingu árið 2020. Um næstu áramót á aðeins eftir að leggja ljósleiðara til um 2.000 bygginga í dreifbýli til að ná því markmiði. Ljósleiðaravæðing utan þéttbýlis stuðlar jafnframt að uppfærslu stofnkerfa fjarskipta á landsvísu og er forsenda meiri áreiðanleika, útbreiðslu og gagnaflutningshraða allra farneta utan þéttbýlis.

Úthlutunarfyrirkomulag er með svipuðu sniði og áður. Sveitarfélögum býðst að sækja um styrk úr 450 milljóna króna heildarpotti fjarskiptasjóðs vegna Ísland ljóstengt. Skilmálar og umsóknarfyrirkomulag hafa tekið breytingum með hliðsjón af fenginni reynslu og framvindu verkefnisins. Stefnt er að undirritun styrktarsamninga vegna Ísland ljóstengt 2018 í janúar næstkomandi. Styrkir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins til ljósleiðarauppbyggingar sveitarfélaga 2018 eru eðlilega háðir afgreiðslu fjárlaga.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum