Hoppa yfir valmynd
10. nóvember 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Desemberuppbót til atvinnuleitenda

Velferðarráðuneytið í Skógarhlíð - myndVelferðarráðuneytið

Félags- og jafnréttismálaráðherra hefur sett reglugerð um greiðslu desemberuppbótar til atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Óskert desemberuppbót er 65.162 kr. Atvinnuleitendur með börn á framfæri fá jafnframt sérstaka uppbót sem nemur 4% af óskertri desemberuppbót, eða rúmum 2.600 kr. fyrir hvert barn yngra en 18 ára.

Rétt á fullri desemberuppbót eiga þeir atvinnuleitendur sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins, hafa verið skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2017 og hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember. Greiðsla desemberuppbótar til þeirra sem eiga ekki fullan bótarétt reiknast í hlutfalli við rétt þeirra til atvinnuleysisbóta á árinu og fjölda mánuða sem viðkomandi hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Uppbótin verður þó aldrei lægri en nemur 16.291 kr.

Uppbót vegna barns eða barna tekur engum skerðingum, heldur nemur í öllum tilvikum 4% af óskertri desemberuppbót sem eru rúmar 2.600 kr. fyrir hvert barn.

Áætlað er að á bilinu 3.900 – 4.200 einstaklingar eigi rétt á desemberuppbót úr Atvinnuleysistryggingasjóði að þessu sinni.

Gert er ráð fyrir að desemberuppbót verði greidd rétthöfum eigi síðar en 18. desember.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum