Hoppa yfir valmynd
19. desember 2017 Dómsmálaráðuneytið

Lok dómsmála um skipun dómara við Landsrétt

Hæstiréttur hefur fallist á miskabótakröfur hæstaréttarlögmannanna Ástráðs Haraldssonar og Jóhannesar Rúnars Jóhannssonar að fjárhæð 700.000 krónur vegna skipunar dómara við Landsrétt. Hins vegar sýknaði Hæstiréttur íslenska ríkið af skaðabótakröfu þeirra. Áður hafði Hæstiréttur vísað frá dómi ógildingarkröfu Ástráðs og Jóhannesar en sú krafa laut að ógildingu þeirrar ákvörðunar dómsmálaráðherra að leggja ekki til við Alþingi að þeir yrðu skipaðir í embætti dómara við Landsrétt.

„Niðurstaða Hæstaréttar kveður á um að lagðar eru ríkari skyldur á ráðherra að rannsaka málið með sjálfstæðum hætti. Ég mun af þeim sökum bregðast við þessari niðurstöðu Hæstaréttar með því að setja reglur innan dómsmálaráðuneytisins sem taka á því þegar ráðherra hyggst leggja fyrir Alþingi aðrar tillögur en þær sem hæfisnefnd leggur til við skipun dómara, eins og honum er heimilt að gera samkvæmt lögum,“ segir Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum