Hoppa yfir valmynd
20. desember 2017 Innviðaráðuneytið

Tvö aðstoða Sigurð Inga Jóhannsson

Ingveldur Sæmundsdóttir og Ágúst Bjarni Garðarsson eru aðstoðarmenn Sigurðar Inga Jóhannssonar. - mynd

Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur ráðið tvo aðstoðarmenn. Þeir eru Ingveldur Sæmundsdóttir og Ágúst Bjarni Garðarsson. Þau hafa bæði hafið störf.

Ingveldur Sæmudsdóttir er viðskiptafræðingur frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn, hefur stundað nám í stjórnun og stefnumótun frá HÍ og er nú í MBA meistaranámi við HÍ. Þá hefur hún lokið diplómaprófi í alþjóðlegri markaðshagfræði og ýmsum öðrum námskeiðum. Ingveldur hefur starfað við eigin rekstur og verið vöru- og viðskiptastjóri í fyrirtækjum á sviði rekstrarvara. Hún var kosningastjóri Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmunum fyrir Alþingiskosningarnar 2013 og síðan pólitískur aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra þar til í janúar á þessu ári. Undanfarna mánuði hefur hún verið aðstoðarmaður formanns Framsóknarflokksins. Ingveldur er gift Guðmundi S. Ólafssyni hugbúnaðarsérfræðingi.

Ágúst Bjarni Garðarsson lauk BA prófi í stjórnmálafræði frá HÍ árið 2013 og síðar MPM frá HR, auk IPMA-D vottunar. Ágúst Bjarni starfaði um árabil hjá Hafnarfjarðarbæ, m.a. við kennslu og síðar hjá Ölgerðinni og utanríkisráðuneytinu. Hann var aðstoðarmaður Sigurðar Inga í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og í forsætisráðuneyti árin 2015 til 2017 og hefur frá byrjun þessa árs verið skrifstofustjóri þingflokks Framsóknarflokksins. Ágúst Bjarni er í sambúð með Áslaugu Maríu Jóhannsdóttur.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum