Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2018 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Breytingar boðaðar á sviði barnaverndar

  • Markmiðið er að efla og þróa barnaverndarstarf í landinu, styrkja stjórnsýslu málaflokksins og byggja upp traust innan hans.

  • Settar verða skýrar formkröfur um samskiptahætti stjórnvalda sem gegna hlutverki á sviði barnaverndar.

  • Eftirlit með öllu barnaverndarstarfi í landinu verður endurskoðað og hluti þess verður strax falinn nýrri gæða- og eftirlitsstofnun sem tekur til starfa á næstu vikum. Frekari breytingar á eftiliti með barnavernd eru boðaðar í frumvarpi á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar.

  • Ráðist verður í heildarendurskoðun barnaverndarlaga.

Eftirlit með öllu barnaverndarstarfi í landinu verður endurskoðað og ráðist í heildarendurskoðun barnaverndarlaga. Þá verða settar skýrar formkröfur um samskiptahætti stjórnvalda sem gegna hlutverki á sviði barnaverndar. Markmiðið er að efla og þróa barnaverndarstarf í landinu og styrkja stjórnsýslu málaflokksins. Frumvarp til laga um eftirlit með barnavernd er komið á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Hluti þessara verkefna verður á höndum nýrrar gæða- og eftirlitsstofnunar sem tekur til starfa innan velferðarráðuneytisins á næstu vikum.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, fundaði í dag með formönnum barnaverndarnefnda Reykjavíkur, Hafnarfjarðar og Kópavogs og kynnti þeim hinar áformuðu breytingar en þeim er ætlað að byggja upp traust innan málaflokksins. Formenn þessara barnaverndarnefnda leituðu til velferðarráðuneytisins síðastliðið haust vegna samskipta við Barnaverndarstofu og forstjóra hennar og lögðu fram umkvartanir þar að lútandi. Velferðarráðuneytið tók þær til efnislegrar umfjöllunar sem nú er lokið og hafa niðurstöðurnar verið kynntar aðilum málsins.

Ráðherra segir að fyrirhugaðar breytingar á sviði  barnaverndar séu að hluta til liður í viðbrögðum ráðuneytisins til að endurheimta traust í kjölfar fyrrnefndra umkvartana en þeim sé einnig ætlað að bæta stjórnsýslu málaflokksins og stuðla að þróun nýrra úrræða í barnavernd:

„Einstaklingar og stofnanir sem gegna hlutverki á sviði barnaverndar verða að geta unnið saman á grundvelli trausts og trúnaðar og fá ef nokkur viðfangsefni stjórnsýslunnar eru mikilvægari og viðkvæmari en þessi. Eftir viðræður við formenn barnaverndarnefndanna og forstjóra Barnaverndarstofu tel ég ljóst að öllum sem hlut eiga að máli sé ljós ábyrgð sín hvað þetta varðar og vilji leggja sitt af mörkum þannig að góður friður skapist og skilyrði fyrir fagleg vinnubrögð verði sem best“ sagði ráðherra að loknum fundinum í dag.

Þá hefur félagsmálaráðherra ákveðið að ráðast í ítarlega skoðun á þjónustu við börn með það meginmarkmiði að tryggja skjóta íhlutun og stuðla að samfellu í þjónustunni þannig að hún mæti sem best þörfum barna og fjölskyldna. Þessi vinna mun nýtast við yfirstandandi endurskoðun barnaverndarlaga sem kveðið er á um í framkvæmdaáætlun á sviði  barnaverndar nr. 15/146.

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, mun á næstunni vinna að verkefnum sem þessu tengjast á grundvelli samkomulags sem gert hefur verið á milli hans og velferðarráðuneytisins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum