Hoppa yfir valmynd
6. mars 2018 Forsætisráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Loftslagsstefna og loftslagsaðgerðir fyrir Stjórnarráðið

Loftslagsstefna og loftslagsaðgerðir fyrir Stjórnarráðið - myndJohannes Jansson/norden.org

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja 12 milljónir króna af stefnufé árið 2018 til gerðar loftslagsstefnu og aðgerðaáætlunar fyrir Stjórnarráðið. Hluti fjármagnsins verður notaður í vinnu sérfræðings eða ráðgjafa og hluti til beinna aðgerða til að draga úr og hefja kolefnisjöfnun á starfsemi Stjórnarráðsins.

Loftslagsstefna fyrir Stjórnarráðið verður eitt þeirra verkefna sem unnið verður að undir hatti aðgerðaáætlunar fyrir Ísland í loftslagsmálum, sbr. stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, en hún mun líta dagsins ljós á þessu ári.

Gert er ráð fyrir því að hvert ráðuneyti tilnefni tengilið sinn í þessa vinnu og setji saman tveggja til þriggja manna teymi sem starfi með sérfræðingi/ráðgjafa við undirbúning og framfylgd verkefnisins. Ríkisstjórnin telur mikilvægt að Stjórnarráðið fari fram með góðu fordæmi, dragi úr losun gróðurhúsalofttegunda í eigin ranni og vinni að því að kolefnisjafna Stjórnarráðið sem fyrst.

Þá munu stofnanir hins opinbera geta notið góðs af þessu starfi og fengið ráðgjöf um hvernig þær geti markað sér stefnu og aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Fleiri fyrirmyndir er einnig að finna hjá þeim ríkisstofnunum, sveitarfélögum og fyrirtækjum sem þegar hafa riðið á vaðið og markað sér loftslagsstefnu. Starfinu verður stýrt af umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum