Hoppa yfir valmynd
26. mars 2018 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Tímamót í starfi frístundaheimila

Nemendur á frístundaheimili - mynd
Í fyrsta sinn eru gefin út markmið og viðmið um gæði starfs á frístundaheimilum fyrir 6-9 ára börn á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins í samræmi við ákvæði í lögum um grunnskóla sem samþykkt voru á Alþingi í júní 2016. Stjórnartíðindi hafa birt viðmiðin og hafa þau tekið gildi.

Starfsemi frístundaheimila hefur þróast á ýmsan veg frá árinu 1995 þegar heimildarákvæði var sett grunnskólalög. Í kjölfar lagasetningar 2016 stofnaði ráðuneytið starfshóp, sem hafði það hlutverk að vinna viðmið um gæði frístundastarfs, þ.m.t. um hlutverk og markmið, skipulag og starfsaðstæður, starfshætti, margbreytileika, stjórnun og menntun starfsfólks. Afrakstur starfs vinnuhópsins hefur verið birtur í Stjórnartíðindum og felur í sér markmið og viðmið um gæði starfs á frístundaheimilum fyrir 6-9 ára börn.

Leiðarljós frístundaheimila fyrir 6–9 ára börn er að bjóða þeim upp á þátttöku í fjölbreyttu frístunda- og tómstundastarfi með það að markmiði að efla sjálfstraust og félagsfærni þeirra. Einnig er lögð áhersla á að umhverfi starfsins einkennist af öryggi, fagmennsku og virðingu þar sem jákvæð samskipti og lýðræðislegir starfshættir eru í hávegum hafðir í samræmi við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

„Mikilvægur áfangi er í höfn sem snýr að því að samræma kröfur til starfsemi frístundaheimila og stuðla að þróunarstarfi um land allt í útfærslu og aukinni samþættingu skóla- og frístundastarfs fyrir yngri nemendur í grunnskólum,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Opið samráð var viðhaft við mótun tillagnanna á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Þetta var gert til að til að tryggja sem mestan samhljóm meðal allra þeirra sem koma að vinnu frístundaheimila. Í innsendum ábendingum komu alls staðar fram jákvæð viðhorf við gerð markmiða og viðmiða, umsagnaraðilar fögnuðu verkefninu og töldu það vera mikilvægt skref til að efla faglegt starf frístundaheimila og auka þróunarstarf í heimabyggð. Fyrirhuguð er kynning á viðmiðunum og viðeigandi innleiðing. Framundan eru áframhaldandi áhugaverðir tímar í starfi frístundaheimila.

Starfshópurinn leggur til að hlutverk frístundaheimila fyrir 6-9 ára börn verði skilgreint á eftirfarandi hátt: Meginhlutverk frístundaheimila fyrir 6-9 ára börn er að bjóða þeim innihaldsríkt frístunda- og tómstundastarf í barnvænu og skapandi umhverfi þar sem starfshættir einkennast af frjálsum leik og vali.

Starfshópurinn leggur til að leiðarljós frístundaheimila fyrir 6-9 ára börn verði skilgreind á eftirfarandi hátt: Bjóða öllum börnum þátttöku í fjölbreyttu frístunda- og tómstundastarfi án aðgreiningar með það að markmiði að efla sjálfstraust og félagsfærni þeirra. Umhverfi starfsins einkennist af öryggi, fagmennsku og virðingu þar sem jákvæð samskipti og lýðræðislegir starfshættir eru í hávegum hafðir í samræmi við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Skýrslu starfshópsins með viðmiðunum má lesa hér á vef ráðuneytisins.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum