Hoppa yfir valmynd
9. maí 2018 Matvælaráðuneytið

Frumvarp um tollfrjálsa móðurmjólk og innflutning osta

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur lagt fram frumvarp til breytinga á tollalögum. Annars vegar er í frumvarpinu kveðið á um að tollar á innflutta móðurmjólk verði felldir niður. Tilefni þessarar breytingar er nýlegt erindi frá vökudeild Landspítalans vegna innflutnings frá Danmörku á móðurmjólk handa fyrirburum. Landspítalinn hefur flutt slíka mjólk inn frosna með hraðpósti og þurft að greiða toll af þeim innflutning. Áætlað er að árlegur tekjusamdráttur ríkissjóðs verði um 37 þúsund krónur á ári verði frumvarpið að lögum.

Hins vegar er í frumvarpinu kveðið á um að hraðað verði innleiðingu á auknum kvótum vegna innflutnings á upprunatengdum ostum. Samkvæmt tollasamningum Íslands og Evrópusambandsins er gert ráð fyrir að á næstu þremur árum verði tollkvóti fyrir upprunatengda osta aukinn um 70 tonn á ári eða alls 210 tonn. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að aukningin komi að fullu til framkvæmda á þessu ári til hagsbóta fyrir íslenska neytendur.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum