Hoppa yfir valmynd
7. júní 2018 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Auglýst eftir þátttöku í tilraunaverkefni um styttingu vinnutíma

Velferðarráðuneytið í Skógarhlíð - myndVelferðarráðuneytið

Velferðarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum frá vaktavinnustöðum hjá ríkinu um þátttöku í tilraunaverkefni ríkisins og BSRB um styttingu vinnutíma. Vinnustaðir um allt land eru hvattir til að sækja um.

Markmið verkefnisins er að kanna hvort stytting vinnuviku leiði til gagnkvæms ávinnings starfsmanna og viðkomandi vinnustaðar.

Valinn verður einn vaktavinnustaður þar sem vinnustundum verður að jafnaði fækkað úr 40 stundum á viku í 36  án þess að til launaskerðingar komi. Tilraun um styttingu vinnutíma mun standa yfir 9 mánuði, frá 1. september 2018 til 1. júní 2019, á þeim vaktavinnustað er valinn verður til þátttöku.

Umsóknarfrestur er til 22. júní næstkomandi.

Við mat á umsóknum verða m.a. eftirfarandi viðmið höfð til hliðsjónar:

  • Að stöðugildi á vinnustaðnum séu 20 eða fleiri.
  • Að a.m.k. 30% starfsmanna á vinnustaðnum séu í aðildarfélögum BSRB.
  • Að meirihluti starfsmanna sé í 70 – 100% starfshlutfalli.

Í umsóknum skulu koma fram hugmyndir um hvernig útfæra megi styttingu vinnutíma á viðkomandi vaktavinnustað. Einnig þarf að koma fram hvernig megi meta áhrif styttingu vinnutíma á vellíðan starfsfólks, starfsanda og þá þjónustu sem vinnustaðurinn veitir með tilliti til gæða og hagkvæmni.

Þátttaka stærri vinnustaða getur afmarkast við deild eða svið innan vinnustaðarins að teknu tilliti til ofangreindra viðmiða.

Starfshópur um tilraunaverkefnið er skipaður fulltrúum velferðarráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og BSRB. Hlutverk hópsins er m.a. að velja vinnustaði til þátttöku í tilraunaverkefninu og meta árangur þess. Starfsmaður verkefnisins er Ása Guðbjörg Ásgeirsdóttir, sérfræðingur hjá velferðarráðuneytinu. Nánari upplýsingar fást hjá henni í síma 545-8100. Umsóknum skal skilað á netfangið [email protected] merkt tilraunaverkefni um styttingu vinnutíma – vaktavinnustaður.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum