Hoppa yfir valmynd
21. júní 2018 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra skipar í embætti aðstoðarseðlabankastjóra

Rannveig Sigurðardóttir - mynd
Forsætisráðherra hefur samkvæmt 1. mgr. 23. gr. laga um Seðlabanka Íslands ákveðið að skipa Rannveigu Sigurðardóttur í embætti aðstoðarseðlabankastjóra til fimm ára frá og með 1. júlí 2018.

Alls sóttu fjórtán um embættið sem auglýst var laus til umsóknar 21. febrúar sl. Tveir umsækjendur drógu umsókn sína til baka og einn umsækjandi uppfyllti ekki almenn hæfnisskilyrði laga um Seðlabanka Íslands. Í samræmi við ákvæði fyrrnefndra laga var sérstök matsnefnd skipuð til að meta hæfni umsækjenda. Nefndin mat fimm umsækjendur mjög vel hæfa til þess að hljóta embætti aðstoðarseðlabankastjóra, þau Daníel Svavarsson, Guðrúnu Johnsen, Jón Þ. Sigurgeirsson, Rannveigu Sigurðardóttur og Þorstein Þorgeirsson.

Rannveig Sigurðardóttir lauk fil. kand. prófi og meistaraprófi í hagfræði frá Gautaborgarháskóla og stundaði þar doktorsnám. Hún hefur frá árinu 2009 starfað sem aðstoðarframkvæmdastjóri hagfræði- og peningastefnusviðs Seðlabanka Íslands og verið ritari peningastefnunefndar, ásamt því að vera staðgengill aðalhagfræðings bankans. Rannveig starfaði áður sem hagfræðingur BSRB í um áratug og var aðalhagfræðingur ASÍ á árunum 1999-2002. Hún var ráðgjafi aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands á árunum 2002-2004 og hefur verið forstöðumaður greiningar- og útgáfudeildar á hagfræði- og peningastefnusviði Seðlabanka Íslands síðastliðin 14 ár. Auk þess að stunda rannsóknir og kennslu hefur Rannveig ritað fjölda greina um efnahags- og peningamál og skyld efni.

Forsætisráðuneytið hefur ákveðið að birta endanlega umsögn matsnefndar um hæfni umsækjenda sem barst ráðuneytinu 12. júní sl. Er það niðurstaða ráðuneytisins að ekkert í umsögninni sé þess eðlis, með hliðsjón af sjónarmiðum um einkalífsvernd umsækjenda, að ráðuneytinu sé óheimilt að birta hana. Hefur ráðuneytið þá jafnframt í huga þau mikilvægu sjónarmið sem lúta að gagnsæi og aðhaldi gagnvart stjórnvöldum við ákvarðanatöku um skipan í þýðingarmikil opinber embætti.

Umsögn matsnefndar um hæfni umsækjenda um stöðu aðstoðarseðlabankastjóra

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum