Hoppa yfir valmynd
25. júní 2018 Utanríkisráðuneytið

Guðlaugur Þór fundaði með efnahagsmálaráðherra Tyrklands

Guðlaugur Þór Þórðarson og Nihat Zeybekci efnahagsmálaráðherra Tyrklands - myndÞorfinnur Ómarsson

Mannréttindi og mál Hauks Hilmarssonar voru á meðal þess sem Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, og Nihat Zeybekci, efnahagsmálaráðherra Tyrklands, ræddu á fundi í Skagafirði í morgun. Guðlaugur Þór kom ennfremur á framfæri gagnrýni á hernað Tyrkja í Norður-Sýrlandi.

Zeybekci er staddur hér á landi í tengslum við ráðherrafund EFTA sem nú stendur yfir á Sauðárkróki en í morgun var skrifað undir uppfærðan fríverslunarsamning EFTA og Tyrklands. Áður en samningurinn var undirritaður áttu þeir Guðlaugur Þór stuttan fund.

Ráðherrarnir ræddu meðal annars tvíhliða samskipti Íslands og Tyrklands og nýafstaðnar kosningar í Tyrklandi. Þá kom utanríkisráðherra á framfæri gagnrýni íslenskra stjórnvalda á stöðu mannréttinda í Tyrklandi og hernaðaraðgerðir Tyrkja í Afrin-héraði í Sýrlandi. Loks tók Guðlaugur Þór upp við tyrkneska ráðherrann mál Hauks Hilmarssonar sem talinn er hafa fallið í hernaði Tyrkja í Afrin-héraði fyrr á þessu ári. Zeybekci tók málaleitaninni vel en hafði engar nýjar upplýsingar sem varpað gætu ljósi á málið, en hét því að tyrknesk yfirvöld myndu áfram veita aðstoð sína við að upplýsa um afdrif Hauks.

„Þetta var ágætur fundur og gott að fá tækifæri til að ræða þessi mál við Zeybekci. Ég hef þegar tekið upp mál Hauks Hilmarssonar við varnarmálaráðherra og utanríkisráðherra Tyrklands og aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa líka vakið máls á því við erlenda ráðamenn þar sem þess hefur verið kostur. Með komu tyrkneska ráðherrans hingað til lands gafst okkur enn eitt tækifærið til að knýja á um frekari upplýsingar og samstarf í þessu sorglega máli,“ sagði Guðlaugur Þór eftir fundinn. 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum