Hoppa yfir valmynd
28. júní 2018 Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

Karlalandsliðið í fótbolta boðið velkomið heim

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hittu landsliðshópinn sem kom heim frá heimsmeistaramótinu í fótbolta í Rússlandi í höfuðstöðvum KSÍ í gærkvöldi.

Ríkisstjórnin bauð til óformlegu móttökunnar þar sem landsliðshópnum og fjölskyldum þeirra voru færðar þakkir og kveðjur. Viðstödd voru einnig Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, Eliza Reid, forsetafrú, Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir formaður borgarráðs og staðgengill borgarstjóra.

„Strákarnir hafa veitt þjóðinni innblástur og mikla gleði síðustu vikurnar og mér þótti vænt um að geta komið þeim skilaboðum til þeirra og fjölskyldna þeirra við heimkomuna í gærkvöldi. Samvinnan og baráttuþrekið þeirra hefur kennt okkur margt og þeir mega vita það að við erum öll sem eitt afar stolt af þeim,” sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.

„Það er sjaldgæft að nær allir landsmenn upplifi sömu tilfinningarnar á sama tíma – en það gerist stundum og sér í lagi þegar við fylgjumst með afreksfólkinu okkar á íþróttasviðinu. Strákarnir hafa náð eftirtektarverðum árangri. Kraftur þeirra, samstaða og baráttuhugur eru til fyrirmyndar og landsmenn, og aðrir aðdáendur, fullir þakklætis og stolts í þeirra garð,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum