Hoppa yfir valmynd
29. júní 2018 Utanríkisráðuneytið, Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Bragi kjörinn í barnaréttarnefnd SÞ

Bragi Guðbrandsson ásamt þeim Einari Gunnarssyni, fastafulltrúa Íslands hjá SÞ í New York, og Helen Ingu Stankiewicz Von Ernst, starfsmanni fastanefndarinnar. - myndUtanríkisráðuneytið

Bragi Guðbrandsson var í dag kjörinn í nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins til næstu fjögurra ára. Atkvæðagreiðslan fór fram á fundi aðildarríkja Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem haldinn var í New York í dag. Bragi fékk mjög góða kosningu, 155 atkvæði af 195. Átján frambjóðendur sóttust eftir níu sætum í nefndinni. Bragi, ásamt fulltrúa Samóa, fékk næstflest atkvæði allra en fulltrúi Marokkó hlaut 160 atkvæði. 

„Réttindi barna eru eitt af þeim málefnum sem Ísland talar reglulega fyrir á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og í þessari niðurstöðu felst því mikil viðurkenning á frammistöðu Íslands á þessu sviði,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra. „Bragi Guðbrandsson er sömuleiðis vel að þessu kominn enda hefur hann menntun, sérþekkingu og áratuga reynslu, bæði á Íslandi og í alþjóðastarfi, í þeim málaflokki sem barnaréttarnefndin fæst við.“

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra fagnar úrslitum atkvæðagreiðslunnar. „Ég er ánægður með þessa niðurstöðu. Ísland hefur nú fengið rödd á þessum mikilvæga vettvangi þar sem talað er fyrir réttindum barna og bættri stöðu þeirra á grundvelli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Áratuga reynsla og þekking Braga Guðbrandssonar á málefnum barna og þátttaka hans í alþjóðlegu samstarfi á þessu sviði mun án efa nýtast vel í störfum barnaréttarnefndarinnar.“

Nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (e. Committee on the Rights of the Child) hefur aðsetur í Genf í Sviss. Verkefni hennar er að fylgjast með framkvæmd samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og bókana við hann. Nefndin er skipuð átján sjálfstæðum, óháðum sérfræðingum, sem kosnir eru til fjögurra ára í senn. Aðildarríkin kjósa níu sérfræðinga í júní annað hvert ár. 

Fyrr á þessu ári samþykkti ríkisstjórnin tillögu félags- og jafnréttismálaráðherra um framboð Braga í nefndina og var utanríkisráðuneytinu falið að undirbúa framboðið. Fastanefnd Íslands í New York hefur borið hitann og þungann af þeirri vinnu. 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum