Hoppa yfir valmynd
29. ágúst 2018 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Sigurður Skúli Bergsson settur tollstjóri

Sigurður Skúli Bergsson - mynd

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur sett Sigurð Skúla Bergsson, aðstoðartollstjóra, tímabundið í embætti tollstjóra frá 1. október næstkomandi, þar til skipað hefur verið í stöðuna.

Sigurður Skúli lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1984 og B.Sc. gráðu í rekstrarhagfræði frá Handelshjøskole Syd. í Danmörku árið 1990. Hann kom til starfa hjá embætti tollstjóra árið 1998 og hefur gegnt embætti aðstoðartollstjóra frá 2006. Snorri Olsen, sem gegnt hefur embætti tollstjóra frá 1997 tekur 1. október við embætti ríkisskattstjóra.

Unnið að aukinni skilvirkni

Fjármála- og efnahagsráðherra skipaði 21. júní sl. nefnd um aukna skilvirkni í skattframkvæmd, álagningu og innheimtu opinberra gjalda. Nefndinni er falið að greina verkaskiptingu, faglegt samstarf og sameiginleg verkefni stofnana ráðuneytisins við skattframkvæmd, álagningu og innheimtu opinberra gjalda. Þá skal hún greina hvaða kostir eru fyrir hendi varðandi breytingar á stofnanaskipulagi og verkaskiptingu. Í því sambandi verði m.a. litið til fyrirkomulags innheimtumála í víðara samhengi og þjónustu við gjaldendur og aðila í inn- og útflutningsstarfsemi. Ennfremur skal nefndin meta hvort einhverjar breytingar kunni að vera æskilegar fyrir stofnanir ráðuneytisins sem sinna skyldum eða tengdum verkefnum. Hér undir fellur víðtæk nýting sjálfvirknivæðingar og gervigreindar, aðlögun að breyttum viðskiptaháttum, áhættustjórnun innan skattkerfisins o.fl.

Nefndin skal ljúka störfum fyrir 1. mars 2019. Nefndin lagði til við ráðherra að innheimtumál flytjist frá tollstjóra til ríkisskattstjóra og er gert að frumvarp þess efnis verði lagt fyrir Alþingi í október. Meðal þess sem nefndin hyggst jafnframt kanna eru kostir þess að sameina eða samþætta að fullu starfsemi tollstjóra og ríkisskattstjóra, eftir atvikum með sérstakri útfærslu er varðar tollafgreiðslu og eftirlit.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum