Hoppa yfir valmynd
5. nóvember 2018 Matvælaráðuneytið

Arctic Sea Farm og Fjarðalax fá rekstrarleyfi til bráðabirgða

Fiskeldisfyrirtækin Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalax hf. hafa fengið rekstrarleyfi til bráðabirgða til 10 mánaða fyrir laxeldi í sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði, samkvæmt ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Matvælastofnun hafði veitt fyrirtækjunum rekstrarleyfi í lok árs 2017 en úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála fellt þau úr gildi 27. september sl.

Með breytingum sem gerðar voru á lögum um fiskeldi í síðasta mánuði var ráðherra veitt heimild, að fenginni umsögn Matvælastofnunar, að gefa út tímabundið rekstrarleyfi til allt að 10 mánaða. Við ákvörðun leyfis til Arctic Sea Farm og Fjarðalax var óskað eftir umsögnum frá Matvælastofnun, Byggðastofnun,  Skipulagsstofnun og Umhverfisstofnun. Jafnframt var andmælendum veitt tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri.

Rekstrarleyfin sem veitt eru til bráðabirgða eru bundin ákveðnum skilyrðum, m.a. skal Matvælastofnun hafa eftirlit með fjölda útsettra laxaseiða, leyfishafi ber ábyrgð á vöktun og rannsóknum til að meta vistfræðileg áhrif á nánasta umhverfi og leyfishafa ber skylda til að nota erfðavísa þannig að unnt sé að rekja uppruna eldislaxa til ákveðinna sjókvíaeldisstöðva. Auk þess ber fyrirtækjunum að hefjast þegar handa við að bæta úr þeim göllum sem úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindarmála taldi vera á málsmeðferð  við útgáfu rekstrarleyfisins sem ógilt var og/eða láta reyna á lögmæti ógildingu þeirra fyrir dómsstólum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum