Hoppa yfir valmynd
23. nóvember 2018 Forsætisráðuneytið

Ríkisstjórnin samþykkir desemberuppbót til umsækjenda um alþjóðlega vernd

Ríkisstjórnin mun verja 5,6 milljónum króna af ráðstöfunarfé sínu í desemberuppbót til umsækjenda um alþjóðlega vernd hér á landi. Þetta var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun.

Umsækjendur um alþjóðlega vernd á Íslandi hafa undanfarin ár fengið viðbótargreiðslu í desember. 618 umsækjendur um alþjóðlega vernd eru nú  í þjónustu hjá  Útlendingastofnun og sveitarfélögunum Reykjavík, Hafnarfirði og Reykjanesbæ, þar af 138 börn. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum