Hoppa yfir valmynd
27. desember 2018 Heilbrigðisráðuneytið

Aukafjárveiting til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni

Svandís SvavarsdóttirSvandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni um 560 milljóna króna viðbótarfjárveitingu fyrir rekstrarárið 2018. Aukningin nemur að jafnaði um 3% af heildarfjárveitingu stofnananna á árinu.

 

Aukafjárveitingunni er fyrst og fremst ætlað að mæta halla á rekstri stofnananna sem að einhverju leyti stafar af veikleika í rekstri en má einnig rekja til ófyrirséðra útgjalda, t.d. vegna mönnunarvanda og veikinda starfsfólks sem kallar á meiri yfirvinnu og þar með aukinn kostnað.

Ákveðnar breytingar eru fyrirhugaðar á fjármögnun heilbrigðisstofnana til lengri tíma litið þar sem áhersla verður lögð á að tengja framlög í auknum mæli við árangur. Stefnt er að  því að innleiða sambærilegt fjármögnunarkerfi fyrir heilsugæslusvið stofnananna og notað hefur verið í heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu frá því um mitt ár 2017 og hefur þótt gefa góða raun. Einnig er áformað að breyta fjármögnun á hjúkrunarsviðum stofnananna og taka upp daggjaldagreiðslur líkt og á hjúkrunarheimilum þar sem fjárhæðirnar taka mið af hjúkrunarþyngd íbúanna.

Aukin framlög til heilbrigðisstofnana skiptast sem hér segir:

  • Heilbrigðisstofnun Vesturlands, 98,8 m.kr.
  • Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, 80 m.kr.
  • Heilbrigðisstofnun Norðurlands, 130 m.kr.
  • Heilbrigðisstofnun Austurlands, 70 m.kr.
  • Heilbrigðisstofnun Suðurlands, 110 m.kr.
  • Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 71,1 m.kr.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum