Hoppa yfir valmynd
7. febrúar 2019 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra undirritar samning við Samtökin ´78

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ásamt Maríu Helgu Guðmundsdóttur, formanni Samtakanna '78 - mynd

Forsætisráðuneytið og Samtökin ´78, hagsmuna- og baráttusamtök hinsegin fólks á Íslandi, hafa gert með sér samning um að samtökin sinni sértækri fræðslu, þjónustu og ráðgjöf er varða málefni hinsegin fólks. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og María Helga Guðmundsdóttir, formaður Samtakanna ´78, undirrituðu samning þessa efnis í Stjórnarráðinu.

Í samræmi við áherslur stjórnvalda verður ráðgjafar- og fræðsluhlutverk Samtakanna ´78 eflt með fjárframlagi forsætisráðuneytisins. Þannig er samningnum ætlað að stuðla að hinseginvænu samfélagi og auknum sýnileika hinsegin fólks. Skal þjónusta þessi beinast annars vegar að hinsegin einstaklingum og aðstandendum þeirra og hins vegar að fagfólki í almannaþjónustu s.s. í opinberri stjórnsýslu og skólum.

Stjórnvöld leggja ríka áherslu á jafnréttismál og í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur fram það markmið hennar að Ísland verði í fremstu röð hvað varðar málefni hinsegin fólks. Í forsætisráðuneytinu er unnið að stefnumótun í málaflokkum og á yfirstandandi löggjafarþingi verður lagt verður fram frumvarp til laga um kynrænt sjálfræði og þingsályktun um framkvæmdaáætlun í málefnum hinsegin fólks.

Auk þess að veita þjónustu og annast fræðslu skulu samtökin samkvæmt samningum standa að:

  • Árlegum samráðsfundum með kennurum sem kenna kynja-, jafnréttis-, og hinseginfræði á öllum skólastigum í því augnamiði að auka þekkingu og færni kennara á jafnréttismálum og málefnum hinsegin fólks.
  • Árlegum samráðsfundum með kjörnum fulltrúum og sérfræðingum sem vinna að opinberri stefnumótun á sviði jafnréttismála um málefni hinsegin fólks.
  • Alþjóðasamstarfi sem hafi að markmiði að byggja upp tengsl við systursamtök á hinum Norðurlöndunum og á alþjóðavettvangi og miðla af reynslu annarra hér á landi.
  • Þátttöku í árlegu kynjaþingi frjálsra félagasamtaka á sviði jafnréttismála og tryggja að raddir hinsegin fólks heyrist á þinginu.

 

Samningurinn gildir frá 15. febrúar 2019 til 15. febrúar 2020 og greiðir forsætisráðuneytið Samtökunum ´78 15 milljónir króna til að sinna þeim verkþáttum sem samningurinn tekur til. Árið 2018 voru fjárframlög ríkisins á grundvelli þjónustusamnings velferðarráðuneytisins og Samtakanna tvöfölduð úr 6 í 12 milljónir króna. Kveðið er á um að framkvæmd verkefna samkvæmt samningnum fari fram í nánu samráði við skrifstofu jafnréttismála í forsætisráðuneytinu.

 


Efnisorð

Heimsmarkmiðin

10. Aukinn jöfnuður

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum