Hoppa yfir valmynd
4. mars 2019 Utanríkisráðuneytið

EES og atvinnulífið – Hvernig höfum við áhrif saman?

Miðvikudaginn 13. mars efnir utanríkisráðuneytið til morgunfundar um samstarf í málefnum Evrópska efnahagssvæðisins ásamt Alþýðusambandi Íslands og Samtökum atvinnulífsins. Fundurinn er haldinn á Grand hótel Reykjavík frá klukkan 8:30 til 10:00.

Á fundinum verður kynntur nýr opinn EES gagnagrunnur þar sem EES-gerðir eru aðgengilegar á einum stað og upplýsingaveita um Evrópska efnahagssvæðið sett í loftið.

Rætt verður hvernig atvinnulífið og launþegasamtök geta haft áhrif á mótun löggjafar á EES svæðinu og hvernig auka megi samstarf hér á landi um málefni sameiginlega markaðarins.

Opnunarávarp: Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra

Erindi:

  • Mikilvægi EES fyrir atvinnulífið: Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA, og Davíð Þorláksson, forstöðumaður samkeppnishæfnisviðs SA.
  • Vannýtt tækifæri og hagsmunir launafólks: Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ.
  • Kynning á opna EES gagnagrunninum og upplýsingaveitu um EES samstarfið: Kristín Halla Kristinsdóttir, sérfræðingur á viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytis.

Í framhaldi fara fram pallborðsumræður:

  • Anna Guðrún Björnsdóttir, sviðsstjóri þróunar- og alþjóðasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Björg Ásta Þórðardóttir, lögfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins
  • Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands
  • Nikulás Hannigan, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins

Fundarstjóri: María Mjöll Jónsdóttir, deildarstjóri upplýsinga- og greiningardeildar utanríkisráðuneytisins.

  • EES og atvinnulífið – Hvernig höfum við áhrif saman? - mynd úr myndasafni númer 1

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum