Hoppa yfir valmynd
8. mars 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Nýr upplýsingafulltrúi félagsmálaráðuneytisins

Vera Einarsdóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi félagsmálaráðuneytisins.

Vera er félagsráðgjafi að mennt en hefur lengst af starfað sem blaðamaður og ritstjóri. Hún hóf störf sem blaðamaður á Fréttablaðinu árið 2007 og leiddi sérblaða- og kynningardeild blaðsins frá 2012 - 2017. Hún hefur auk þess starfað sem verktaki hjá Barnavernd Reykjavíkur.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum